Bergmál - 01.04.1954, Síða 50
Hafið þið nokkurntíman misst svo hastarlega stjóm á
öðrum fæti ykkar, að úr því hafi orðið eitt heljarmikið
spark í sitjanda náungans? —
Heljar-mikið spark
Smúsaga eftir William Saroyan
<í>--------------------------------f
Höfundur þessarar smásögu,
W. Saroyan er Iesendum Berg-
máls kunnur af tveim smásögum,
sem birtust á árinu 1951. W. Sar-
oyan er einn af þekktustu rithöf-
undum Ameríku nú. Hann er
fæddur árið 1908 og byrjaði
snemma að skrifa, en það er ekki
fyrr en um 1930 sem hann fer að
vekja á sér athygli að ráði. Síð-
an hafa komið út eftir hann
fjöldi skáldsagna og leikrita, sem
náð hafa allmiklum vinsældum,
bæði vestan hafs og austan. Stíll
hans er mjög lipur og ieikandi,
stundum galgopalegur. — Hann
elskar lífið og trúir á mannkær-
leikann.
4------------------------------—
Nú, sem stendur, er fjöldi
manna hér í Coalinga, sem hafa
andúð á Clip Rye, aðeins vegna
þess að hann sparkaði í ungfrú
Alice Pfister niðri í Olíustræti,
framan við rakarastofu Jóa
Kolbs, meira að segja um há-
bjartan dag.
En fæstir þessara manna
skilja Clip. í hvaða borg sem
væri, annarri en þessari for-
smánarholu, myndi Clip hljóta
viðurkenningu af hinum mennt-
aða aðli, en hvernig fer fyrir
honum í öðrum eins hrafna-
krók og hér? Hann fellur í ónáð.
Honum er stungið inn. Og hvers
vegna, ef mér leyfist að spyrja?
Jú, vegna þess að hann gerði
þetta. Vegna þess að hann gat
ekki stillt sig um að láta hana
hafa það. Hann sparkaði í hana.
Nú er ekki svo að skilja að ég
hafi nokkuð út á ungfrú Pfister
að setja, eða aðrara af sömu
gerð, það er að segja, á meðan
ég er laus við allar slíkar ung-
frúr, bæði virka daga, sunnu-
daga og aðra helgidaga. Clip
gat ekki á sér setið og sparkaði
af heljar krafti. Og nú er fjöldi