Bergmál - 01.04.1954, Side 51
1 954 --------------------------
manna, sem geðjast ekki að
honum.
Hið eina, sem hægt var að
finna að þessu heljar-sparki hjá
Clip, var það, að það var rakið
ástarspark. Ungfrú, eins og
þessi ungfrú Pfister, á alls ekki
skilið að fá ástarspark frá
manni eins og Clip, frægasta
elskhuga í öllu Tulare. Það, sem
ég á við, er það, að hann var
alltof elskulegur við hana. Leyf-
ið mér að skýra yður frá því,
hvernig þetta gerðist; Ekki af
því, að Clip sé bróðir minn, því
að það er hann ekki, ekki held-
ur frændi minn. Við erum ekki
einu sinni sérstakega góðir
vinir. Ég er því ekki fyrirfram
hlutdrægur í þessu máli,
þannig að ég dragi Clips taum,
og ég er alls ekki einn þeirra,
sem mæla því bót, að sparkað
sé í sitjandann á dömum, á al-
mannafæri. En ég hefi einu
sinni sjálfur sparkað í dömu,
og ég hefi verið alveg að því
kominn að sparka í tíu eða tólf
aðrar. Sú kona, sem ég sparkaði
í, hélt því fram, að ég væri
ónytjungur. Hún sagði blátt
áfram að ég væri latur. Það var
fyrsta konan mín. En ég spark-
aði ekki í hana á almannafæri
eins og Clip gerði. Þér eruð
----------------- Bergmál
meira að segja fyrsta persóna,
sem fær að vita um það, að ég
hefi sparkað í dömu. Því að
ekki geng ég um og blaðra um
það, margir eru nefnilega svo
viðkvæmir, að þeir þola ekki
að heyra um dömur, sem hafa
fengið spark. Það er þó ekki
þess vegna, að margir hugsi
nánar út í þessi mál, heldur að-
eins vegna þess, að menn þola
ekki svona óviðfelldið umtals-
efni.
í raun og veru vildi ég ekki
sparka í sitjandann á fyrstu
konunni minni, jafnvel ekki
eftir að hún hafði næstum gert
mig brjálaðan með skömmum
og svívirðingum. Hún vildi að
ég tæki þátt í námskeiði hjá
bréfaskóla einum til þess að
heilinn í mér gæti ef til vill orð-
ið að einhverju gagni. — Heil-
inn í mér, sem þó hugsar betur
en flest-allir meðalheilar. Auk
þess sem ég get alls ekki fellt
mig við að hugsa. Stundum get
ég ekki sofið um nætur vegna
hugsana. Þá ligg ég og hugsa og
hugsa um allt mögulegt, til
dæmis um það hve heimurinn
myndi breytast mikið til batn-
aðar, ef ég ætti tvö til þrjú
hundruð dollara í vasanum. Eða
þá, að ég fer að hugsa um póli-
49