Bergmál - 01.04.1954, Page 52
Apríl
Bergmál ----------------------
tík og hve dásamlegt það væri,
ef ég væri ráðherra eða máske
varaforseti.
Þannig hugsa ég stöðugt, bæði
nótt og dag. Og svo var fyrsta
konan mín það óforskömmuð,
að leyfa sér að stinga upp á því,
að ég færi á námskeið hjá bréfa-
skóla til þess að gera heila minn
enn skarpari, þótt hann væri
ofreyndur fyrir. En jafnvel eftir
að þessu stigi var náð, hafði ég
enga löngun til að sparka í hana,
en ég missti blátt áfram stjórn
á hægri fætinum og það næsta,
sem ég man, þar á eftir, er það,
að konan mín sat á dagstofu-
gólfinu og sagði ýmislegt ljótt
um mig.
Ef til vill trúið þið mér ekki,
en sannleikurinn er sá, að í
raun og veru sé ég eftir þessu
ennþá.
Ef allt hefði gengið að venju,
þá hefði ég aðeins tugtað hana
svolítið, en ég missti sem sagt
stjórn á hægri fæti mínum.
Hún var mjög móðguð og and-
lega særð, jafnvel eftir að ég
hafði sagt henni hve mér þætti
þetta leitt. Ég lyfti meira að
segja upp hægri fætinum og
sýndi henni hversu gjörsamlega
ég hafði misst allt vald yfir
honum. Hún sá kippina í fætin-
um á mér, sem stöfuðu af löng-
un til að sparka í hana aftur,
en hún vildi ekki skilja mig.
— Krúttið mitt —, sagði ég.
— Þetta var alls ekki ég sjálfur,
það var fóturinn á mér. Ég
myndi aldrei hafa gert þetta.
Hún fór heim til móður sinn-
ar og ég hefi aldrei séð hana
síðan.
Clip Rye gerði þetta á miðj-
um degi, segið þér, og úti á
miðri götu. Já, og fjöldi fólks
varð vitni að því. Þess vegna
var Clip stungið inn. Og fólkið
sagði meira að segja, að það
hefði ekki einungis séð spark-
ið, heldur einnig heyrt það,
því að það olli allmiklum
skarkala, enda sat ungfrú Pfist-
er flötum beinum á gangstétt-
inni á eftir.
Clip Rye er ekta konu-spark-
ari, já, ég álít reyndar, að hver
einasti karlmaður sé fæddur
konu-sparkari, ef talað er í
fullri hreinskilni. Ég hefi aldrei
hitt einn einasta, sem ekki hefir
haft löngun til að sparka í ein-
hverja konu. í sannleika sagt,
þá má segja að fjöldi karlmanna
lifa lífinu í stöðugri baráttu við
að halda hægri fæti sínum í
skefjum.
Hver einasti meðalmaður
eyðir álíka orku og þeirri, sem
felst í Niagara fossinum, til
*
50