Bergmál - 01.04.1954, Qupperneq 56
VÖKU-
DRAUMAR
Skáldsaga
eftir
Peter Burnham
ÞAO, SEM ÁÐUR ER KOMIÐ AF SÖGUNNI:
Biddy og Maureen hafa misst foreldha sína í bílslysi fyrir nokkrum ár-
um. Biddy, sem er eldri gengur eftir það Maureen systur sinni í foreldra-
stað og heldur heimilinu við. Hún vinnur við húsverk á kvöldin hjá rik-
asta kaupmanni borgarinnar, hinum hálf-lamaða og aldurhnigna Símoni
Fletcher. Gamli maðurinn hefir tekið ástfóstri við Biddy, kaupir handa
henni samkvæmisfatnað og sendir hana á árshátíð starfsfólksins í Fletcher-
verzlununum í fylgd með dóttursyni sínum, Nick Fletcher. Á dansleikn-
um lendir Biddy í illdeilum við dömu, sem Nick hafði verið búinn að
bjóða með sér, Stellu Grange. — Nokkrum dögum eftir dansleikinn kemur
Biddy að Símoni gamla Fletcher liggjandi neðan við stiga í húsi sínu
og andast hann í örmum hennar. Biddy hafði þótzt heyra fótatak á gang-
inum ofan við stigann, er hún kom að gamla manninum deyjandi, en segir
lögreglunni ekki frá því, vegna þess að hún hafði ástæðu til að halda, að
Maureen systir hennar hefði viljað gamla manninn feigan. — Þegar hér
er komið sögu, er verið að lesa erfðaskrána.
Hann fór höndum um skjölin, sem lágu framan við hann á borð-
inu og sléttaði leðrið á handtösku sinni. Augu hans hvörfluðu til
Nich Fletchers, sem sat þögull við enda borðsins.
Afi yðar endursamdi þessa erfðaskrá tveim dögum fyrir slysið,
herra Fletcher,“ sagði hann, eins og hann væri að búa hann undir
vonbrigði.
54