Bergmál - 01.04.1954, Síða 57
1 954 --------------------------------------------- Bergmál
Hann tók á ný til við lestur erfðaskrár Símonar Fletchers.
„Ungfrú Biddy Mason, ánafna ég eitt þúsund sterlingspund,
sem eiga að greiðast strax,“ las hann.
Biddy sundlaði, er hún heyrði þetta. Eitt þúsund sterlingspund.
Það var ekkert smáræði. Hún væri bara orðin forrík. Hún gat vart
trúað eigin eyrum. Lögfræðingurinn ræskti sig fyrirmannlega.
„Dótturson minn, Nicholas Fletcher arfleiði ég að heilræði. En hann
hefir ætíð þverskallast við að hlusta á heilræði mín,“ las lög-
fræðingurinn hægt og gætilega. „Og auk þess geri ég hann hér með
að einkaerfingja að öllum mínum ótöldum eignum. Með einu skil-
yrði, en í því skilyrði felst heilræði mitt. — Skilyrðið er það, að
hann hafi áður en ár er liðið frá dauða mínum gengið að eiga ung-
frú Biddy Mason, en til hennar ber ég hið fyllsta traust. En ef hann
ekki uppfyllir þetta skilyrði og lætur undir höfuð leggjast að kvæn-
ast Biddy innan tilskilins tíma, þá arfleiði ég hana, að öllu mínu
ótöldu lausafé, sem og fasteignum og öllu öðru sem mín eign er —
Biddy drap titlinga, eins og hún hefði fengið ofbirtu í augun.
Dauðaþögn ríkti í stofunni góða stund.
Lögfræðingur myndi alls ekki leyfa sér þá ósvífni að skopast að
fólki á þvílíkri stundu, annars myndi Biddy helzt hafa ímyndað sér
að þetta ætti að vera skop, og það mjög ósmekklegt og óviðeigandi
skop af hálfu herra Ormans. — Er hann nú braut saman blöð sín,
hafði skrjáfið svipuð áhrif og skyndilega hafði lostið niður eldingu
mitt á meðal þeirra. Biddy þorði ekki að líta í áttina til Nicks Flet-
cher. Henni fannst það smánarlegt, að hún væri þannig notuð sem
agn gégn honum. Hvað hafði gamli maðurinn eiginlega verið að
hugsa? Hafði hann raunverulega lesið í hug hennar og séð hvað hún
hugsaði er hún sá Nick. En ef að hann hafði raunverulega séð í
hug hennar, þá hafði hann samt áreiðanlega valið alranga aðferð til
að reyna að hjálpa henni við að láta vökudrauma hennar rætast.
„Þetta er hlægileg fjarstæða,“ sagði hún eins og ringluð. Ég trúi
því ekki að herra Fletcher hafi sett þetta skilyrði í erfðaskrá sína.“
„Ég get fullvissað yður um, að þetta skjal er fullkomlega lögleg
erfðaskrá,“ sagði lögfræðingurinn þurrlega.
Nick Fletcher hló, stuttum, hörkulegum kuldahlátri.
55