Bergmál - 01.04.1954, Síða 61

Bergmál - 01.04.1954, Síða 61
1954 B E R G M Á L alveg eftir gamla manninum, að reyna að hafa áhrif á líf annarra, jafnvel eftir dauða sinn?“ „Hann treysti því, að þér mynduð hafa þroskandi og bætandi áhrif á dótturson sinn, því megið þér ekki gleyma,“ sagði lögfræð- ingurinn. „Er enginn, — alls enginn möguleiki á að fara í kring um þetta ákvæði?“ spurði hún, eins og í bænarróm. „Hvað ætti ég að gera með alla þessa peninga og allár þessar eignir? Þetta er ekki mitt í raun og veru — þetta er ekki sann- gjarnt.“ Herra Orman leyfði sér að brosa lítið eitt. „Ef til vill verður það ekki yðar eign, ungfrú Mason,“ sagði hann. „Nick Fletcher gæti gifzt yður.“ Þetta var auðvitað hárrétt. Hann gat fundið upp á því að giftast henni eingöngu til þess að klófesta arfinn, enda þótt hann elskaði hana ekki. Hún var sannarlega í klípu. En ástríkt og óflekkað hjarta hennar myndi þjást, ef hún giftist honum, þá gæti hann álitið að ef hún aftur á móti neitaði að giftast honum, þá gæti hann álitið að það væri vegna þess, að hún vildi halda öllum auðnum og eign- unum handa sjálfri sér. Lögfræðingurinn kvaddi og fór, en Biddy fannst hún þarfnast ráða gömlu frú Andrews og hélt því niður í eldhúsið, þar sem gamla konan var að fægja silfurmuni. „Mér geðjast alls ekki að þessu, frú Andrews,“ sagði Biddy. „Ég þykist skilja tilfinningar yðar til fullnustu,11 sagði.frú And- rews og leit rannsakandi til hennar. „Þér eruð ástfangin af Nick Fletcher, ekki satt?“ Roðinn þaut fram í kinnar Biddy, en samt hló hún og reyndi að láta svo, sem þetta væri hin mesta fjarstæða. „Ég ástfangin?11 hróp- aði hún. „Auðvitað ekki, frú Andrews-----“. „Þér getið ekki slegið ryki í augun á mér, Biddy. Ég veit hvað ég syng,“ sagði gamla konan íbyggin. „Þér yrðuð Nick betri eiginkona en Stella Grange, og það vissi herra Fletcher heitinn. En vitanlega á ekki Nick sjálfur alla sök á því hvernig hann er. Gamli maðurinn spillti honum í uppvextinum. Hann er í raun og veru bezti piltur, 59

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.