Bergmál - 01.04.1954, Page 67

Bergmál - 01.04.1954, Page 67
Amerískar gamansögur Einu sinni fengu allir krakkarnir í hverfinu að fara á námskeið. Og það var það eina, sem púður var í, því að ef maður fékk ekki að fara á nám- skeið eins og öll hin, þá var maður bara núll og nix í hópnum. Þess vegna skældi Anna litla alveg undir drep, af því að hún fékk ekki að fara á nám- skeið. Þegar Anna hafði grátið lengi, lengi, sagði mamma hennar: „Anna mín, ef þú hættir þessum skælum, þá skaltu fá að fara á námskeið.“ Nú varð Anna litla óskaplega glöð og fór að brjóta heilann um það á hvaða námskeið hún ætti að fara. Og þegar hún hafði hugs- að sig um lengi, lengi. Þá ákvað hún að taka námskeið í fallhlífarstökki. Svo að Anna litla fór nú að æfa og æfa alveg undir drep, og þegar hún hafði æft sig lengi, lengi, þá kom að því, að hún varð að sýna hvað hún gat, því að þegar maður hefir verið á námskeiði, er maður eiginlega til- neyddur að sýna hvað maður getur. Nú, — nú, — svo kom fólk að úr öllum áttum til þess að sjá Önnu litlu stökkva með fallhlíf. Og hún flaug hátt, hátt upp í loftið í flugvélinni og bjó sig því næst undir að stökkva út. Hún horfði niður til jarðarinnar og sá allt fólkið, sem horði upp í loftið og svo stökk hún út. En á leiðinni niður hló hún og hló alveg undir drep, því að nú hafði hún platað fólkið laglega. Hún hafði ekki fallhlífina á sér. —o— Einu sinni villtist Anna litla á eyði- eyju. Allt í einu slógu svartar mann- ætur hring um hana og tóku hana til fanga. Þeir bundu hana fasta við eitt tréð og kveiktu svo upp, undir stóra pottinum sínum. Anna litla sá það, að þeir ætluðu að búa til kjötkássu úr henni, svo að hún fór að drepa tímann með því að telja þessar grindhoruðu og banhungruðu mannætur. Þetta voru nítján manns. Þá fór Anna litla að skellihlæja, og hló og hló alveg undir drep, því að hún vissi, að hún var ekki nógu stór til þess að allir gætu bragðað á kjötkássunni. —o— Kvöldið eftir sat Anna litla hjá kær- astanum sínum í sófanum, þegar ör- yggin biluðu skyndilega og ljósin slokknuðu. „Oj, bara, en hvað það er dimmt,“ sagði kærastinn hennar Önnu litlu. „Ég sé ekki einu sinni hendina á mér framan við andlitið á mér.“ Þá hló Anna litla alveg undir drep, því að hún vissi allan tímann að hann hafði hvoruga hendina framan við andlitið. —o— Einu sinni sat Anna litla og lék sér að eldspýtum. „Heyrðu góða mín, þetta ættir þú ekki að gera,“ sagði mamma hennar. En Anna litla var skrambi ó- þekk, svo að hún hélt bara áfram að leika sér að eldspýtunum og eftir nokkra stund kveikti hún í húsinu, svo að það brann til kaldra kola. — Mamma og Anna litla stóðu á eftir og horfðu á öskuhauginn og mamma sagði: „Hana-nú, sagði ég ekki, að svona myndi fara? Bíddu bara þang- að til pabbi þinn kemur heim, þá færðu áreiðanlega að sjá í tvo heim- ana.“ En nú skellti Anna litla upp úr og hló og hló alveg undir drep. Hún vissi allan tímann, að pabbi hennar hafði komið heim klukkutíma áður en kviknaði í húsinu og lagt sig inni í svefnherbergi. —o— Bróðir Önnu litlu var einn af þess- um föstu viðskiptavinum tugthúsanna. Einu sinni þegar hann hafði setið inni í þrjú ár, þá brauzt hann út. Löggan leitaði og leitaði að honum alveg und- ir drep, en hvergi fannst hann. Þegar mánuður var liðinn ákvað löggan að setja blóðhunda á sporið. Þá fór Anna litla að hlæja og hló og hló alveg und- ir drep, því að hún vissi allan tímann, að bróðir hennar þjáðist af blóðleysi. —o—

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.