Bergmál - 01.09.1957, Side 22

Bergmál - 01.09.1957, Side 22
B E R G M Á L hvernig ég var af tilviljun staddur á brezkum kafbát, þeg- ar ég var handtekinn. „Treyst- irðu Bretunum í raun og veru?“ hafði Kesselring spurt. „Því ekki það?“ hafði yfir- herShöfðinginn svaraðj „við treystum jafnvel Þjóðverjum á sínum tíma.“ Yfirhershöfðing- inn virtist 'hafa mestu ánægju af því að minnast þessa fundar síns með Kesselring. Að nokkrum tíma liðnum breyddist sá orðrómur út um fangelsið að yfirhershöfðinginn væri í raun og veru þýzkur njósnari. Njósnari sem Þjóð- verjarnir hefðu sett þarna inn í íangelsið undir fölsku yfirskini. Itölsku fangaverðirnir voru sam- mála um það, að einhver tak- mörk yrðu að vera fyrir þeirri auðmýkingu sem þeir yrðu að þola, enda þótt þetta væru menn sem hefðu verið aldir upp í hin- um gömlu herdeildum Musso- linis. Þeir komu sér saman um það sín á milli, að þeir skyldu halda strangan vörð um yfir- hershöfðingj ann nótt sem nýtan dag. Ef svo reyndist, að hann væri í raun og veru njósnari og gengi þarna undir fölsku nafni, þá voru þeir ákveðnir í því að kyrkja hann. ---------------- S E P T E M U E R Morguninn eftir að þeir höfðu tekið þessa ákvörðun sína tók Della Rovere á móti fanga núm- er 203, en það var major, sem gert var ráð fyrir að vissi miklu meira en flestir aðrir fangar og sem vitað var að Þjóðverjarnir höfðu ekki getað veitt neinar upplýsingar upp úr. Ceraso fangavörður húkti fyrir framan klefadyrnar og aðrir ítalskir íangaverðir fylgdust með hon- um skammt frá. „Þér munið verða að þola hinar ægilegustu pyntingar," heyrðu þeir að yfirhershöfðing- inn sagði við majorinn. „Þér megið ekkert játa, þér verðið að halda huga yðar alveg hreinum og neyða sjálfa yður til að trúa því að þér vitið alls ekki neitt, jafnvel það að hugsa um einhver leyndarmál, sem að þér kunnið að búa yfir, gæti orðið til þess að þau kæmu ósjálfrátt fram á varir yðar.“ Majorinn hlustaði á þetta öskugrár í andliti og þegar yfirhershöfðinginn hafði sagt þetta við hann bætti hann við því sama og hann hafði sagt við mig. „Ef þeir þrátt fyrir allt neyða yður til að segja eitthvað, þá segið þeim aðeins að þér hafið ekki gert neitt nema það sem ég hafi skipað yður fyrir.“ 20

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.