Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 4
?'?????■????“?■?•? ?????? ????????????
?????????? J-A 7, ? ? ?,? ? ?«%.? ????????? ?
?????????? ?ú? ??????????
???????????????????????????????
??????? ?????? ?????? ???9?9?99???
Stjörnur koma of sjaldan. — „Ég bíð
með óþreyju eftir hverju nýju hefti af
Stjörnum. Ég vildi bara að þær kæmu oft-
ar, að minnsta kosti í hverjum mánuði."
Þessi orð standa í bréfi frá stúlku vestan
af fjörðum. Samhljóða raddir heyrum við
hvaðanæva að af landinu. „Eini gallinn á
Stjörnum er sá, að blaðið kemur ekki út
mánaðarlega," segir lesandi í Vestmanna-
eyjum. „Hversvegna eru Stjörnur ekki
vikublað eins og t. d. Fálkinn og Vikan?"
spyr stúlka í Reykjavtk. Aíargir bréfrit-
arar skrifa, að þeir vilji að Stjörnur birti
fjölbreyttara efni t. d. meir af smásög-
um.
Nú er það svo, að Stjörnur hafa valið
sér það svið að vera fyrst og fremst kvik-
myndablað og flytja myndir, fréttir og
greinar um þau efni. Þessvégna verður
rniklu að kosta til mynda, og pappír að
vera eins góður og völ er á. Þetta verður
auðvitað nokkuð á kostnað lesefnisins. Það
er takmarkað hvað kemst fyrir í einu litlu
hefti.
'jr Heftum fjölgar. — Við höfum ákveð-
ið að gefa út 12 hefti á þessu ári og kemur
því út Stjörnublað í byrjun hvers mán-
aðar allt árið. í þessum tveimur viðbót-
arheftum verður nteira af léttu skemmti-
efni og smásögum en í hinutn heftunitm,
en reynt verður yfirleytt í þessum árgangi
að birta meir en áður af smásögum og
verða þá leikaragreinarnar hafðar fáorð-
ari en verið hefur, með þcim hætti verð-
ur blaðið fjölbreyttara og skemmtilegra.
Margoft hafa blaðinu borist óskir frá
ungum stúlkum meðal lcsenda sinna utn
það að birtar væru í blaðinu tízkumynd-
ir. í þessutn árgangi blaðsins, og von-
andi framvegis, munum við sýna nokk-
urn lit á að verða við þessum óskttm.
Við höfura náð sambandi við tízkudeild-
ir kvikmyndastöðvanna í Hollywood og
fáum þaðan sendar myndir af ýmsum
stjörnum í nýjustu kjólunum þeirra og
kápum. Vonum við að jretta verði vel
þegið.
Orðsending til áskrifenda. — Reyk-
víkingar og aðrir kaupstaðabúar, sem
hægt eiga með að kaupa blaðið í bóka-
verzlunum og á öðrum útsölustöðum,
eru vinsamlega beðnir að gera það. í
Reykjavík er svo kostnaðarsamt að láta
innheimta verð árgangsins að cngin tök
Framhald d siðu 51.
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
STJÖRNUR koma út 12 sinnum á ári.
4 STJÖRNUR