Stjörnur - 10.01.1950, Blaðsíða 49

Stjörnur - 10.01.1950, Blaðsíða 49
honum, að tilfinningar hennar væru óbreyttar, og hún hefði ekki gleymt honum. — Já, ég man það vel, sagði hann. Við vorum mikil börn í þá daga. — En það erum við ekki lengur, sagði hún til að þreyfa fyrir sér. — Nei, við erum ekki lengur börn, Martha, sagði hann. — Ekkert af því, sem við létum okkur dreyma um rættist — nema eitt, sagði hún. Þú ert kominn aftur. Sá draumur fékk þó að rætast. — Walter er hér líka, sagði hann kuldalega. — Milli okkar Walters er .... byrjaði hún, en hann greip fram í fyrir henni. — Eg skildi það þegar ég sá ykkur saman í skrifstofunni hans í dag, sagði hann þyrkningslega. — Ég sá hvernig þú leist til hans, heyrði hvernig þið yrtuð hvort á annað .... — Sam, greip hún fram í, ef þú verður hér í Iverstown .... — Já, en ég verð hér ekki. Þau þögðu bæði. Hún færði sig fjær honum, og þegar hún hóf aftur máls var rödd hennar breytt. — Allt í lagi, Sam. Hvert var erindi þitt hingað? Hversvegna komstu? Hann yppti öxlum. — Vegurinn tók á sig hlykk og ég gleymdi að fylgja honum. — Svaraðu! allt að því hrópaði hún. Hann leit í augu henni. — Það er eins og þú sért að skipa mér. Mér fannst í svip þú líkj- ast fóstru þinni. — Ég frábið mig svona tal — ég vil ekki heyra slíkt, sagði hún með sömu háværu röddinni. — Ég verð ekki það lengi hér í borginni að ég fái tækifæri til að endurtaka það, sagði hann kuldalega. Strax og vinkonu minni verður sleppt úr fangelsi mannsins þíns og bílaverkstæði Dempseys hefur lokið viðgerðinni á bílnum mínum held ég ferðinni áfram. Hún leit í augu hans. Það var þá allt og sumt, hugsaði hún. Hann hafði þá ekki annað í hyggju. Það bjó ekkert sérstakt undir heimsókn hans. Walter hafði rangt fyrir sér. Hann var enginn fjárkúgari. — Þú hefur ekki breytzt mikið, sagði hún. Þú lætur ekki skipa þér. Æ, Sam, hvað það var leiðinlegt að þú skyldir strjúka með þessum trúðum .... Hún færði sig nær honum. Hún var auðmjúk og blíð og varir itJÖRXLR 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stjörnur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.