Stjörnur - 10.01.1950, Side 9

Stjörnur - 10.01.1950, Side 9
Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir. maður minn, unz Jens Nielson kennari tók við af henni fyrir tveimur árum. Við bíóin úti á landi er sinn maður á hvorum stað, en flestar myndir eru frum- sýndar hér í Reykjavík og styðj- ast þeir eflaust við okkar dóma hér syðra. Þó hef ég frétt af því, að myndir, sem mér hafa þótt ósköp saklausar börnum, hafi ver- ið bannaðar sumstaðar annars- staðar á landinu. — Og hvaða tilhögun er svo höfð á eftirlitinu og eftir hvaða reglum er farið? — Þegar ákveðið er að sýna nýja mynd, sem ekki hefur verið frumsýnd hér áður, fæ ég orð um að koma, og get ég alltaf átt von á kalli frá einhverju bíóanna á tímanum frá kl. 1—5 e. h. Ég get því ekki verið fast bundin við önnur störf á þessu tímabili, en auðvitað er það marga dagana, sem engin ný mynd kemur fram. Þegar úrskurða á hvort leyfa eða banna skuli mynd til sýning- ar fyrir börn og unglinga, hef ég einkum tvennt í huga: Getur myndin haft siðspillandi áhrif, getur hún vakið slíka hræðslu hjá barninu að alvarlegt mein geti að orðið. Síðara atriðið er ekki síður mikilsvert, þótt mörg- um sjáist einmitt yfir þessa á- stæðu til þess að mynd sé bönn- uð. Áður en farið var að fylgjast með því af hálfu hins opinbera hvaða myndir börnum var leyft að sjá, kom það ekki ósjaldan fyr- ir, að böm urðu beinlínis veik af hræðslu á kvikmyndasýning- um. Það er annað en gaman þeg- ar slíkt kemur fyrir, því áhrif hræðslunnar geta orðið langæ, t. d. hefur einn Reykjavíkurlækn- anna frá þeim árum sagt mér, að hvað eftir annað hafi hann verið sóttur til barna að næturlagi, sem gripin urðu á ný ofsahræðslu vegna mynda, sem þau höfðu séð. Börn, sem fyrir slíku verða, sækj- ast ekki eftir því að fara í bíó næstu árin. Flestar myndir eru þannig að ekkert álitamál er hvort leyfa eigi þær eða banna. Glæpa- og sakamálamyndir eru auðvitað STJÖRNUR 9

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.