Stjörnur - 10.01.1950, Síða 15

Stjörnur - 10.01.1950, Síða 15
getið notað það. Verðið þér heima í kvöld? — Já, hvíslaði Lísa. Hún vissi nú að maðurinn hlaut að hafa hringt í skakkt númer, en hún gat ekki fengið sig til að leiðrétta það alveg strax. O, ef þetta hefði nú í raun og veru verið hennar vin- ur, ó, hve hamingjusöm hefði hún ekki verið. — Má ég syngja lagið einu sinni enn? hélt maðurinn áfram. Finnst yður ekki hrynjandin falla vel við vísurnar, til dæmis hérna, Vívianna .... — Jú, en skiljið þér .... stam- aði Lísa, ég er ekki .... — Ó, fyrirgefið þér. Ég hef fengið skakkt númer, afsakið, af- sakið .... Og tækinu var skellt á. — Halló. Halló! hrópaði Lísa. Hún gerði það ósjálfrátt, eins og hún hefði hrópað á hjálp í lífs- hættu. En það var ekkert svar. Aðeins dauður sónninn í síman- um hrópaði á móti, að ævintýrinu væri lokið. Hún féll niður í sófa- hornið sitt, þar sem sokkahrúg- an beið hennar. En hún hafði enga eirð til þess að sirrna svo hvers- dagslegum hlutum sem götóttum sokkum. Lagið söng í brjósti hennar. Hún kunni það og við- lagið var svona: A meðal miljón kvenna er mín hin eina sanna, sem ég skal finna og unna, unz ævistundin dvín. Ósjálfrátt byrjaði hún að raula lagið, en áður en varði söng hún fullum hálsi unz nágrannarnir beggja vegna börðu í veggina til þess að láta hana vita að þeir kærðu sig ekki um slíkan hávaða. Það gætti sannarlega ekki neinn- ar hrifningar af þeirra hálfu. Morguninn eftir vaknaði hún venju fyrr og tók töluverðan krók á sig á leiðinni til skrifstof- unnar., Hún vissi, eins og allir aðrir í borginni, hver Vivianna var. Vivianna Parker, aðalsöng- stjarna Fjalakattarrevyunnar. Önnur Vivianna var ekki til. Lísa gekk framhjá húsinu hennar, staðnæmdist snög'gvast eins og hún byggist við að ævintýraprins- inn myndi koma út. En í því húsi ríkti þögn næturinnar, flestir gluggar voru myrkir ,aðeins dauf næturljós á stöku stað. Vivianna svaf ennþá. Lísa hélt göngu sinni áfram og kom á hæfilegum tím^ í skriftofuna, þar sem ritvél- in beið hennar. OG NÆSTA kvöld hófst eins og hið fyrra. Sokkahrúgan, sem hún hafði látið eiga sig í gær, beið hennar. Nú var ekki undan- komu auðið. En varla hafði hún fyrr hreiðrað um sig í sófahorn- inu er sagan frá því kvöldinu áð- 5TJÖRNVR 15

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.