Stjörnur - 10.01.1950, Page 30
Framh. a£ síðu 2ö.
yfir því að vita hann taka þátt í
því að frelsa ættjörð okkar und-
an oki nazistanna. Við fullviss-
uðum hvort annað um það, að
fyrr eða síðar myndu vegir okk-
ar aftur mætast, hversu langt sem
þess yrði að bíða.
En svo hðu mánuðirnir hver
af öðrum og ég vissi ekkert um
vin minn, hvað um hann var orð-
ið, hvort hann var lífs eða liðinn.
Helzt gerði ég ráð fyrir því, að
hann hefði orðið að hverfa úr
landi.
Svo lauk stríðinu og land okk-
ar varð á ný frjálst. En ég fekk
hvorki boð né bréf. Eg reyndi að
finna honum afsakanir og taldi
mér trú um þetta og hitt. En
hvað átti ég í rauninni að halda?
Ég hafði nú kynnst öðrum
pilti, sem mér féll að mörgu leyti
vel í geð. Hann var mjög hrifinn
af mér og mér varð það ljóst, að
ég gat ekki látið hann bíða öllu
lengur í óvissu um hug minn.
Þetta var heiðarlegur og góður
piltur, sem ég vildi ekki reynast
illa. Hafði ég ekki vakið honum
vonir? Vissi ég sjálf hvað ég
vildi? Enn hafði ég engu heitið
honum. Nú bað hann um ákveðið
svar.
Þá loks kom bréf frá vini mín-
um. Hann var nýkominn heim frá
útlöndum og dvaldi nú heima hjá
foreldrum sínum í borg allfjarri
heimkynnum mínum. Hann
kvaðst þrá að fá að sjá mig aftur.
Um leið varð mér það fyllilega
Ijóst — það sem ég raunar hafði
alltaf vitað innst í leynum hug-
ans — að hann einn, og engan
annan, myndi ég nokkurntíma
geta elskað. En sú spurning hlaut
að vakna, hvort ég gæti dansað
svo eftir hans pípu? Hafði hann
sýnt mér þá tillitssemi, er ég átti
heimtingu á? Hvað hafði drifið
á daga hans, þessa mörgu, löngu
mánuði? Var hann sá hinn sami
nú og þá er við kvöddumst?
Eg svaraði bréfi hans ekki
strax. En ég talaði við hinn nýja
vin minn. Ég sagði honum, að mér
væri það ljóst að annar maður
ætti hug minn og það myndi ekki
verða okkur til hamingju þótt ég
hétist honum. Það væri bezt' að
vegir okkar skildu. Hann varð að
sætta sig við þetta.
Dagarnir liðu hver af öðrum.
Mér fannst ég sjálf vera að reka
naglana í líkkistu hamingju minn-
ar. Loks braut ég odd áf oflæti
mínu og skrifaði, játaði fyrir hon-
um, að ég þráði ekkert heitara en
að fá að sjá hann aftur —-------
Ég gat ekki annað .... Nú fer
hann ekki oftar frá mér.
30 STJÖRNUR