Stjörnur - 10.01.1950, Page 34
um í síðasta árgangi — skilja
gleði hennar.
★
GARY COOPER og Rockey
kona hans geta líka haldið góðar
veizlur. Meðal skemmtiatriða hjá
þeim á dögunum voru tveir söngv-
arar frá Honolulu, sem léku sjálfir
undir á gítara sína, eins og vera
ber. Meðal gesta voru Van John-
son og frú, Ray Milland og frú,
David Niven og frú, svo að nokkr-
ir séu nefndir.
Það var mikið sungið. Leikarar
eru ekki ólíkir sjálfum sér og öðr-
um í því að vilja sjálfir skemmta
— sér og öðrum —Þegar Hono-
lulusöngvararnir höfðu sungið
um stund var þeim sagt að halda
sér saman — auðvitað á kurteisan
hátt — en spila máttu þeir, og
svo sungu gestirnir.
Van Johnson hafði nefnilega
verið svo hugulsamur að taka
með sér í veizluna hljómupptöku-
tæki, sem hann hafði nýlega eign-
ast. Og þegar gestirnir voru orðn-
ir þreyttir á að syngja var nýinn-
spiluð platan sett á fóninn. Svo
skemmtu gestirnir sér við að
hlusta á sjálfa sig syngja — af
plötu — og á því þreyttust þeir
aldrei — Leikarar eru eins og
aðrir menn — næstum því.
Þarna í veizluni voru líka Ed-
gar Bergen og frú. Þau voru ný-
lega komin heim frá New York,
þar sem þau höfðu bæði gert
mikla lukku, hann fyrir búktal
sitt og brúðu, hún vegna fegurðar
sinnar. 011 blöðin töluðu um það
hve fögur frú Bergen væri, hins-
vegar minntist ekkert þeirra á
það, að hún væri tízkusérfræð-
ingur — og það fannst henni satt
að segja (helvíti) hart.
Meðal annara orða: David Ni-
ven hefur látið hafa það eftir sér,
að þau hjónin hafi í hyggju að
heimsækja Svíþjóð, ættland frú-
arinnar, einhverntíma á næst-
unni. Ekki verður þá neitt smá-
ræði þar um dýrðir, ef úr því
verður og ef við þekkjum Svía
rétt.
★
HINIR ÓBREYTTU borgarar
Hollywood, þ. e. a. s. þeir sem
ekki eru neitt við kvikmyndir
riðnir, vilja auðvitað allir vera
vinir stjarnanna. Og leiðin til
þeirra hæða liggur ekki ósjaldan
í gegnum barnahjörtun. Sum
stjörnuheimilin eru barnmörg, og
þau börn, eins og önnur, eignast
vini utan stéttarinnar, einkum
meðal ríka fólksins sem trúlega
notfærir sér þá möguleika sem
við það opnast til frægðar í blöð-
unum. Barnaveizlur eru því mjög
tíðar í Hollywood, ekki síst á stór-
hátíðum og tyllidögum.
í slíkar veizlur vantar aldrei
blaðamenn og ljósmyndara, enda
er þessháttar efni vel þegið í kvik-
myndasíður dagblaða og tíma-
rita. Frá einu þessara boða var
svo sagt nýlega, að bílarnir hefðu
34 STJÖRNUR