Stjörnur - 10.01.1950, Síða 35
Orðin amma.
Hver skyldi trúa því að Joan
Bennett sé orðin amma? Hún er
nú orðin 39 ára gömul og eldri
dóttir hennar, sem er 21 árs og
gift, fæddi fyrsta barn sitt fyrir
nokkrum vikum.
komið í löngum röðum og litlu
gestirnir, ásamt gæslumönnum og
konum, stigu prúðbúnir út. Leik-
vangur gestgjafans var eins og
heill dýragaður. Þar voru litlir
hestar og margskonar aðrar
skepnur sem hægt var að fá sér
reiðtúr á, og öll hugsanleg
skemmtitæki. Þegar til borðs var
gengið voru þar tertur í laginu
eins og sirkustjöld og káboyhetj-
ur úr súkkulaði, svo að nokkuð
sé nefnt.
Seint um kvöldið komu svo for-
eldrarnir — ekki til að sækja
börnin ,heldur til þess að kveðja
þau um leið og þau sjálf fóru í
næturklúbbana og skemmtistaði
borgarinnar.
Svona gengur það til í Holly-
wood, stundum, ekki alltaf, því
börn margra kvikmyndastjarn-
anna fá ekki að fara í veizlur
nema þá mjög sjaldan, og flestir
foreldranna hafa vit á því að halda
þeim frá glislífinu eins lengi og
unnt er.
* * Veslings Anne Baxter. Holda-
farssérfræðingarnir í Hollywood
(auðvitað eru slíkir menn þar til)
hafa komist að raun um að þessi
mæta stjarna sé að eðlisfari feit-
lagin og hljóti með aldri að verða
all þéttholda og fyrirferðarmikil
— ef ekki sé beitt sérstökum
varúðarráðstöfunum. Hverjar
þær eru er leyndarmál hennar og
læknanna, en eitt er víst að hún
verður að neita sér um að borða
og drekka flest eða allt það sem
hana langar í. Þetta vill hún til
vinna. En ekki er það gaman.
Hollywood i des. 1949.
B. A.
STJÖRNUR 35