Stjörnur - 10.01.1950, Side 36

Stjörnur - 10.01.1950, Side 36
Ominnisdrykkurinn. Smásaga eftir Rudolph Baumack. í HRINGLÖGUÐU turnherbergi sem skreytt var með alls konar veiðiútbúnaði, hjartarhornum og úttroðnum villifuglum, sat ungl- ingur á viðarstól og tvinnaði boga- streng úr marðarsinum og söng glaðværan veiðisöng. Klæðnaður hans benti á að hann var veiði- maður, og snöggskorna hárið, að hann væri þjónn í kastalanum. Nafn hans var Heinz. Yfir höfði mannsins hékk hring- róla, og í rólunni sat grár fálki með bundna vængi. Hvað eftir annað hætti maðurinn vinnu sinni til að koma rólunni á harða hreyfingu, þegar hún ætlaði að stanza. Þetta var gjört til þess að hindra fálkann frá að sofna, því hann var ungur og átti að temj- ast til veiða. Tamningin á rétt- vöndum fálka, byrjar á því að gjöra hann undirgefinn með hungri og vökum. Heinz hafði verið veiðimaður greifans, og hjá honum hafði hann alltaf haft mikið að starfa. En nú höfðu tímamir breyzt til batnað- ar. Gamli greifinn veiddi ekki framar, því í heilt ár hafði hann hvílst þögull og kyrrlátur í lík- kistu úr steini, skreyttri merkis- skjöldum. Og ekkjan hans, hún frú Aðalheiður, sat alla daga hjá kastalaprestinum og hugsaði ekk- ert um veiðistörf. í dag hlaut húsfreyju kastalans að hafa leiðst bænaiðjan, því hún kom út úr herbergjum sínum og reikaði um virkið. Söngur veiði- sveinsins, var geðfeld breyting frá hinu nefhljóðaða sálmakvaki prestsins, og hún gekk á hljóðið og fór inn í herbergi veiðimanns- ins í turninum. Heinz varð meir en lítið for- viða, þegar hann sá hina skraut- legu hefðarkonu, með sorgar- blæju og í gráum kjól, koma inn til sín. Hann stóð á fætur og hneigði sig djúpt. Hin demant- skæru augu frú Aðalheiðar, horfðu rannsakandi á hinn granna vöxt ungménnisins, og svo brosti hún yndislega, og Heinz sýndist bros hennar eins bjart og geislar vorsólarinnar í maímánuði. Hefð- arkonan spurði margra spurninga 36 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.