Stjörnur - 10.01.1950, Page 42
Skógarkonan gamla kom til hans,
hældi honum fyrir iðni hans og
mælti:
„Nú kemur annað skyldustarf-
ið.“
Þá átti Heinz að grafa upp trjá-
ræturnar, stinga upp jarðveginn,
gróðursetja korn og sá fræi. Að
þessu verki var hann í sjö vikur.
En á hverju kvöldi, þegar dag-
starfi hans var lokið, færði dóttir
gömlu konunnar honum kvöld-
verðinn, settist á trjástofn nálægt
honum, og hlýddi á Heinz þegar
hann var að segja henni frá um-
heiminum. Og þegar hann lauk
máli sínu, rétti hún honum hvítu
höndina og mælti:
„Góðar nætur, kæri Heinz.“
Svo fór hún heim, en Heinz leit-
aði sér að hvílustað og féll strax
í svefn.
Þegar sjö vikur voru liðnar,
kom gamla konan og leit yfir
verkið, hældi unglingnum fyrir
iðnina, og sagði:
„Nú kemur þriðja skyldustarf-
ið. Ur viði þeim, sem þú hefur
feldan, skaltu byggja mér hús með
sjö herbergjum ,og þegar því erf-
iði er lokið, geturðu fengið bikar
fylltan óminnisdrykkinum, og
mátt fara hvert sem þú villt.“
Svo gerðist Heinz trésmiður, og
með öxi og sög byggði hann ágætis
hús. Honum vannst verkið seint
í fyrstu, þar sem hann var aleinn,
en honum var það samt ekki ó-
geðfellt, laufgaður skógurinn var
yndi hans, og hann myndi hafa
verið ásáttur með að eiga ævin-
lega heima í nánd við gömlu kon-
una. I rauninni hugsaði hann þó
stundum um hinar fyrri sorgir
sínar, en einungis eins og sá, sem
hefur dreymt illa drauma og verð-
ur glaður að vakna frá þeim að
morgni. A hverju kvöldi kom
dóttir skógarkonunnar út til hans,
og þau sungu saman, stundum
glaðværa veiðisöngva, stundum
skilnaðarsöngva, um óendur-
goldna ást og unaðsljúfa sam-
fundi.
Þannig liðu sjö mánuðir. Þá var
smíðinu lokið og húsið fullgert,
allt frá þrepskildi og upp í mæn-
irborð. Heinz hafði komið ungu
furutré fyrir við gaflinn og mærin
fléttað sveigi úr furutágum með
rauðum fjallasks-berjum, og
skreytt veggina með þeim. Gamla
konan kom út á hækjum sínum,
með köttinn sitjandi á herðum
sér, og leit yfir hið fullendaða
smíði. Hún var mjög alvarleg, og
í hendi sinni bar hún útskorinn
bikar úr viði, fylltan óminnis-
drykkinum.
„Þú hefur unnið hin þrjú
skyldustörf, sem ég lagði fyrir
þig,“ sagði hún, „og nú færðu
launin. Tak við þessum bikar,
og þegar þú hefur teigað hinn
síðasta dropa hans, þá hverfur
hið umliðna úr minni þér.“
Skógarbúinn var á báðum átt-
42 5TJÖRNUR