Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 43

Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 43
um, þegar hann rétti höndina eftir bikarnum. „Drekktu og g'leymdu öllu,“ mælti gamla konan. „Öllu?“ „Já, öllu, — þínum fyrri sorg- um, sjálfri mér, og —“ „Og mér líka,“ sagði mærin yndislega og tók hendinni fyrir augun til að hylja tárin, sem brutust út. 'íí’á greip ungmennið bikarinn, kastaði honum af alefli til jarðar svo óminnisdrykkurinn féll í glitrandi dropum ofan yfir grasið, og hann hrópaði: „Eg vil dvelja hjá þér, móðir!“ Og áður en hann gat gjört sér grein fyrir því hvað skeð hafði, hvíldi mærin við brjóst hans og brosti gegnum tárin. Léttur þytur heyrðist frá trjánum og korn- stangirnar hneigðu höfði fyrir andvaranum. Fuglarnir sungu og grái kötturinn gömlu konunnar gekk hringinn í kring um hina hamingjusömu elskendur. Nú gæti ég án mikillar fyrir- hafnar breytt gömlu konunni í ljómandi fagra álfkonu, dóttur hennar í konungsdóttur og hina nýbyggða húsi í skrautlega höll, en við skulum heldur vera sann- sögul og láta allt vera ein og það var. En eitt furðuverk skeði þó í raun og veru. Allsstaðar þar sem dropi af óminnisdrykkinum féll til jarðar, spratt upp svolítið blóm með himinbláum augum. — Síðan hefur blómið breiðst út yfir allt landið, en fyrir þá, sem þekkja ekki nafnið á því, var saga þessi ekki rituð. stjörmir 43

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.