Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 27
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
25
Björn Guðmundsson sonur Guðmundar
Björnssonar framkvæmdastjóra. Var lengi
skrifstofustjóri hjá HÓ. Hann tók mikið af
myndum í Ólafsvík bæði úr leik og starfi.
skipið út og standa einir að útgerð
skipsins. Leituðu þeir þá til
stjórnenda HÓ um það hvort
HÓ vildi kaupa með þeim hlut í
skipinu og taka að sér útgerð þess
með þeim bræðrum. Varð það úr
að HÓ og þeir bræður gerðu með
sér samning um að mynda sam-
eignarfélagið, Björn & Einar sf.
Yrði HÓ eigandi að 50% hlut í
félaginu, en hvor þeirra bræðra
25% eigendur og skipið keypt og
rekið í nafni sameignarfélagsins.
Einar var ráðinn skipstjóri,
Björn útgerðarstjóri og fram-
kvæmdastjóri HÓ tók að sér
reksturinn fyrir félagið. Stóð þetta
samstarf enn þegar Guðmundur
Björnsson hætti sem fram-
kvæmdastjóri HÓ í árslok 1987
og reyndist útgerð skipsins farsæl
allan tímann. Skipið var fyrst og
fremst gert út frá Ólafsvík til hrá-
efnisöflunar fyrir HÓ og yfirleitt
gert út á línu seinni part vetrar
fram í febrúar og síðan á þorska-
net fram í maí og á botnvörpu á
fisk eða rækju yfir sumarið. A
haustin var farið á síldveiðar fyrir
Austurlandi og þá aðallega landað
á Eskifirði. Var skipið yfirleitt
annað tveggja aflahæstu skipa frá
Ólafsvík á vetrarvertíðum ásamt
mb. Gunnari Bjarnasyni, sem
einnig var gerður út af HÓ. Eig-
endur létu byggja yfir skipið í
Stykkishólmi líldega um 1980.
Mb. Gunnar Bjarnason SH 25
Árið 1975 keypti HÓ ásamt
Hauki Sigtryggssyni og Sigurði
Stefánssyni fiskiskipið Hagbarð
Óskar Þorgilsson starfaði sem verkstjóri hjá
HÓ og var áður hjá Hólavöllum. ljósm. PSJ
frá Keflavík, sem var 177 brutto-
lestir að stærð, smíðað í Noregi
1963. Var stofnað hlutafélagið
Vararkollur um kaup og rekstur
skipsins og voru hluthafar: HÓ
45%, Sigurður Stefánsson og
Anna Jónsdóttir 10% og Haukur
Sigtryggsson og Steinunn Þor-
steinsdóttir 45%. Skipinu var gef-
ið nafnið Gunnar Bjarnason SH
25 og skipstjóri frá upphafi var
Ríkarð Magnússon, sem var
þekktur aflamaður og reyndist svo
einnig með þetta skip því á vetrar-
vertíðum var þetta skip oftast afla-
hæsta skipið, sem gert var út frá
Ólafsvík a.m.k. til og með 1987.
Skipið var sent til Cuxhaven í
Þýzkalandi sumarið 1979 og skipt
um aðalvél og ljósavél og nýjar
vélar af Caterpillar-gerð settar í
skipið og ýmsar aðrar endurbætur
gerðar á skipinu, en síðar eða upp
úr 1980 var byggt yfir skipið í
Hafnarfirði.
Skipið var líkt og Garðar II.
gert út til hráefnisöflunar fyrir
HÓ á línuveiðar fyrri part vetrar
fram í febrúar og síðan á þorska-
net fram í maí. Yfir sumarið á
togveiðar til þorsk eða rækjuveiða
en að haustinu til síldveiða fyrir
Austurlandi og aðallega landað á
Eskifirði, en þó siglt með a.m.k.
einn farm til Ólafsvíkur með síld
aðallega til beitufrystingar.
Reyndist skipið og áhöfn þess í
alla staði mjög vel.
Bv. Lárus Sveinsson SH 126
Árið 1975 höfðu Lóndrangar
hf., sem Guðmundur Kristjóns-
son, Guðmundur Sveinsson og
Víglundur Jónsson áttu, fest kaup
á mb. Guðbjörgu frá ísafirði. En
Víglundi fannst skipið ekki henta
sínu fyrirtæki, Hróa h£, til hrá-
efnisöflunar, þar eð skipið, sem
fékk nafnið Lárus Sveinsson SH
126 yrði eingöngu gert út á tog-
veiðar.
Urðu eigendur því sammála um
að HÓ keypti 50% eignarhlut
Víglundar í félaginu og tæki við
rekstrinum ásamt þeim félögum.
Ný stjórn var þá mynduð í félag-
inu og var hún þannig skipuð:
Guðmundur Björnsson formaður
og meðstjórnendur Guðmundur
Kristjónsson og Guðmundur
Sveinsson. Fljótlega fór félagið að
leita fyrir sér um kaup á skuttog-
ara til að auka möguleika félagsins
á meiri afla. Snemma árs 1977
bauðst félaginu að kaupa nýlegan
Sigurdór Eggertsson bílstjóri. Ljósm. Björn Guðmundsson