Kveikt á perunni - 15.01.2004, Side 19

Kveikt á perunni - 15.01.2004, Side 19
Kveíkt á perunni 19 Brot úr sögu rafvæðingarinnar •Hugsjónamaðurinn og Vestur-íslend- ingurinn Frímann B. Arngrímsson sem hafði kynnst rafmagninu og notk- un þess af eigin raun, reyndi haustið 1894 að hvetja ráðamenn í Reykjavík til þess að virkja vatnsaflið í Elliðaán- um til rafmagnsframleiðslu, þannig að almenningur í Reykjavík hefði raf- magn til ljósa og síðar til suðu á mat. Fríman hafði ekki erindi sem erfiði en orð hans höfðu þó þau áhrif að Bæjar- stjórn Reykjavíkur fékk Sæmund Eyj- ólfsson búfræðing til þess að mæla vatnsmagnið og hæð fossanna í Elliða- ánum. Sæmundur notaði einn góðan sunnudag til verksins vegna þess að hann vildi ekki vinna svona ónauðsyn- legt verk á virkum degi þegar nauð- synleg skylduverk gengu fyrir. •En það var ekki Bæjarstjórn Reykja- víkur sem var fyrst að virkja fyrir Reykvíkinga heldur Jóhannes Reykdal trésmiður og verkstæðiseigandi í Hafnarfirði sem sá Hafnfirðingum fyr- ir rafmagni. •Jóhannes virkjaði Hamarskotslæk- inn í Hafnarfirði, sem kemur að mest- um hluta úr Urriðakotsvatni, haustið 1904 og gat þar með raflýst verkstæð- ið og 16 önnur hús í næsta nágrenni. Fystu rafljósin voru kveikt í Hafnar- firði 12. desember sama ár. •Árið 1909 keypti Bæjarsjóður Hafn- arfjarðar virkjunina við Hamarskots- læk af Jóhannesi Reykdal. Það var fyrsti vísirinn að Rafveitu Hafnar- Qarðar, sem er fyrsta almenningsraf- veitan hér á landi. •Önnur sveitarfélög fylgdu síðan í kjölfarið. Hér verða aðeins nefnd þau sveitarfélög sem reistu litlar vatnsafls- virkjanir og ráku einnig ljósavélar til þess að geta selt rafinagn til almenn- ingsþarfa. • Eskifjarðarhreppur reisti sumarið 1911 litla virkjun við Ljósá á Eskifirði Ljósárvirkjun. Rafmagnsveitur ríkis- ins yfirtóku Rafveitu Eskifjarðar árið 1958. Stöðvarhúsið við Ljósá með tækjum og búnaði, samt ekki þeim elstu, er varðveitt í menningarsöguleg- um tilgangi. •Seyðisfjarðurkaupstaður virkjaði í fyrsta sinn í Fjarðará haustið 1913. • Hvanneyrarhreppur í Siglufirði reisti litla virkjun við Hvanneyrará sumarið og haustið 1913. Það var upphafið að Rafveitu Siglufjarðar sem síðar byggði Skeiðsfossvirkjun. •Húsavíkurhreppur reisti litla virkjun við Búðará á Húsavík sumarið 1919. Rafveita Húsavíkur tók til starfa um líkt leyti. Virkjunin við Búðará dugði skammt og þurfti einnig að keyra ljósavélar með til þess að anna þörf- inni. Rafveita Húsavíkur fékk loks árið 1948 rafmagn frá Rafmagnsveit- um ríkisins framleitt í Laxárvirkjun í Aðaldal. •Bæjarstjóm Akureyrar byggði litla virkjun í Glerá á Akureyri sumarið 1922. RafVeita Akureyrar var stofhuð sama ár og hafði fyrst og fremst raf- magn frá Glerárvirkjun og Ijósavél að auki til dreifingar á Akureyri þar til lokið var við byggihgu Laxárvirkjunar í 1939 og línulögn til Akureyrar. yppi m IIK HVERNIG SKAMMDEGIÐ VÆRI ÁNRAFMAGNS? ...Við óskum íslendingum tii hamingju meö 100 ára afmæíi rafmagns á Fróni... RARIK ar RAFMAGN A ISLANDI 1904-2004 RAFMAGN I 100 ÁR 1904 -1961 - 2004 RAFAGNATÆKNI SÍÐUMULA 1 -108 REYKJAVÍK SÍMl 568 7555 FAX 568 7556 rt@rt is - www.rt.is Samfeiid reynsia frá 1961 í hönnun rafbúnaðar Meðaí nýlegra verkefna: Stjórnkerfi orkuveranna í Svartsengi. Ljósieiðarakerfi Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórnkerfi Vatnsveitu Hafnarflarðar. Kynnist okkur nánar og lítið á heimasíðu okkar WWW.rt.IS

x

Kveikt á perunni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kveikt á perunni
https://timarit.is/publication/1992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.