Kveikt á perunni - 15.01.2004, Page 28
28
Kveikt á perunni
Virkjanir
og náttúra
Undanfarin ár hefur verið vaxandi umræða í þjóðfélaginu
um virkjanir og umhverfisáhrif þeirra. Fjölmiðlar hafa sýnt
fjölda mynda frá svæðum sem munu breytast við fram-
kvæmdir og er umræðan um Kárahnjúkavirkjun flestum
ofarlega í huga. Sú umfjöllun vakti Ijósmyndarana Ágúst
E. Vilhjálmsson og Birgi F. Birgisson til umhugsunar
um hvernig væri umhorfs á svæðum þar sem fram-
kvæmdum væri lokið, stórvirkar vinnuvélar horfnar og
náttúran hefði fengið tíma til að aðlagast.
Þeir ákváðu að fara af stað með Ijósmyndaverkefni þar sem viðfangs-
efnið er virkjanir og náttúra. Tilgangur verkefnisins er að sýna svæðin
eins og þau líta út mörgum árum eftir að virkjanirnar tóku til starfa.
„Það kom okkur á óvart hversu fjölbreytt svæðin eru og aðgengileg en
fáir virðast þó gera sér ferð til að skoða þau. Á þessum svæðum er
margt áhugavert fyrir augað. Þess vegna erum við ánægðir með að
hafa lagt í þetta verkefni þar sem það hefur kynnt fyrir okkur hluta
landsins sem við hefðum annars ekki kynnst," segja þeir félagarnir.
Þeir hófu verkið í febrúar 2003 en flestar myndirnar voru teknar síðast-
liðið sumar. Verkefninu er ekki lokið og eiga því fleiri Ijósmyndir eftir að
bætast í safnið.
Síðar á þessu ári er stefnt á að halda Ijósmyndasýningu þar sem af-
rakstur verkefnisins verður sýndur. Einnig hefur verið opnuð vefsíða í
tengslum við verkefnið, www.icelandic-photos.com þar sem unnt er
að skoða fleiri myndir. Landsvirkjun styrkti Ijósmyndarana til verksins.
Inntak við Sigöldu.
Yfirfall Suitatangavirkjunar.
Fossar við Krókslón.