Ný menntamál - 01.06.1994, Blaðsíða 3
Um efni
Það er blekking þegar menn vilja halda því fram að skólum beri
aðeins að sinna fræðsluhlutverki en uppeldishlutverkið sé í
höndum fjölskyldunnar. Blekkingin felst í því að í raun eru engin
skýr skil á milli uppeldis og fræðslu. Fræðslan felur í sér uppeldi og
uppeldi krefst fræðslu.
Þetta sést vel þegar kemur að mismunandi fræðslu fyrir mismun-
andi stadda nemendur eða þegar sérstakt tillit þarf að taka til
sálarástands nemanda. Á þetta er minnt í þessu tölublaði. í greina-
flokki um sorgina er bent á tímabundna erfiðleika sem nemendur
geta þurft að kljást við. Greinaflokknum fylgja myndir Ingu Sól-
veigar og ljóð Barbro Lindgren í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdótt-
ur. í öðrum greinum er fjallað um þarfir viðkvæmra nemenda og
fræðslu til að upplifa listina.
Auk þessa eru hér greinar um nytsemi stærðfræðikennslu og um
þróunarstarf í Noregi og ekki má gleyma Sögum úr skólastofunni.
Sú venja hefur skapast að hafa krossgátu í sumarblaðinu. Krossgát-
an er erfið en verðlaun fyrir lausn hennar eru líka vegleg. Við
hvetjum lesendur okkar til að senda lausnir.
ISSN 0258-3747
MEKIFJfAMÁL 2. tbl. 12. árg. 1994
Q Útgefendur: Hiö íslenska kennarafélag og Kennarasamband íslands. □ Ritstjóri: Hannes ísberg
Ólafsson □ Ritnefnd: Guörún Geirsdóttir. Guörún Ebba Ólafsdóttir, Hafsteinn Karlsson, Þuríöur
J. Jóhannsdóttir □ Útiit: Ragnar Gíslason □ Prófarkalesari: Vilborg Sigurðardóttir □ Teikningar:
Ingvar Guðnason □ Skrifstofa: Lágmúla7,108 Reykjavík, sími 91-31117 □ Litgreining: Offsetþjón-
ustan hf.o Setning, tölvuumbrot, filmuvinna. prentun og bókband: G. Ben. prentstofa hf.
V_______________________________________________________)
Sorg. Ljósmynd Halldórs K.
Valdimarssonar.
V__________________________________)
Efni blaösins
Gretar Marinósson
Áhrif breytinga og sparnaðar
á viðkvæma nemendur .... 6
* Ólöf Helga Þór
Sorgin í skólanum...... 14
Björn Bergsson
Að vinna með sorgarferlið
í félagsfræðikennslu ...... 19
* Guðrún Jónsdóttir
Getum við lært af
þróunarstarfinu á
Askerova?.......... ....... 23
* Eiríkur Þorláksson
Nauðsyn listkennslu á
grunnskólastigi ........... 28
* Björn Sigurðarson
Stærðfræði
Námsleiðin/Námsleiðinn .. 34
Örnólfur Thorlacius
Sögur úr skólastofunni ....
38
3