Ný menntamál - 01.06.1994, Qupperneq 17

Ný menntamál - 01.06.1994, Qupperneq 17
c ! andfélagslega hegðun sem vekur reiði fullorðinna. Það er oft leiðin til að koma í veg fyrir vorkunn. Það er mjög brýnt að kennarar fylgist vel með ungl- ingi í sorg og láti ekki blekkjast af tímabundnum hress- leika eða afneitun á sorginni. Það er ágætis ráð að minna sjálfan sig á að sorgin tekur tíma og skrá í dagbókina til dæmis „í dag eru þrír mánuðir frá því að Nonni í 9.Ómisstimömmusína“, gefasigþá að Nonna svo lítið beri á og láta hann vita að þú munir ennþá eftir sorg hans. Ég bæði þekki það á eigin skinni og einnig hef ég reynt það í starfi að betri hjálp er ekki hægt að fá en viðurkenningu á að sorgin tekur tíma og að fólk hefur ekki gleymt. Maður stendur ekki aleinn uppi. Hlutverk kennarans sem stuðningsaðila nemanda í sorg Kennari þarf að sýna barni í sorg umburðarlyndi og reyna að átta sig á hegðun þess. Mikilvægara er að kennari viðurkenni breytta hegðun barnsins og að breytingin geti varað í langan tíma en að reyna að greina hvers eðlis breytingin er. Barn í sorg getur reynt að neita tilfinningum á borð við reiði og sársauka með því að bæla þær innra með sér. Það geta liðið mánuðir og jafnvel ár áður en barn fær útrás fyrir bældar tilfinn- ingar sínar. Eitt af einkennum sorgarinnar eru einbeitingarörð- ugleikar og að eiga erfitt með að fylgjast með því sem fram fer í umhverfinu (jafnvel skemmtileg kvikmynd fangar ekki athyglina). Það er mikilvægt að kennari átti sig á því og taki tillit til þess eftir fremsta megni í kennslunni. Kennari verður þó að varast að mismuna barninu; það verður að styðja barnið innan hópsins eins og frekast er unnt og sýna ekki of mikla vor- kunnsemi og góðvild svo að barnið einangrist ekki um of frá bekkjarfélögum. Börnin verða öðruvísi en jafnaldrar eftir andlát ná- ins ástvinar. Þau hverfa oft tímabundið til fyrra þroska- stigs t. d. getur skriftarfærni níu ára barns breyst eins og hann eða hún skrifaði sjö ára. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur fyrstu misserin. Þegar nemandi í skólanum hefur misst náinn ætt- ingja er mikilvægt að bekkjarkennari láti aðra kennara vita. Einnig gangaverði, ritara skólans og skólayfir- völd. Það er mikilvægt að þessir aðilar láti nemandann vita að þau viti um dauðsfallið og sorg nemandans. Þar sem íslenskt samfélag tilkynnir andlát í tjölmiðlum, er það oft ný reynsla fyrir börn að heyra og sjá eigið nafn á opinberum vettvangi. Heimilið gjörbreytist, aðstand- endur koma í heimsókn og votta samúð sína, allt líf fjölskyldunnar snýst um hinn látna. Margir syrgjendur gera því ráð fyrir að „allir“ viti um dauðsfallið. Kvíði og ótti barnsins er því mikið „hvernig bregst mitt um- hverfi, skólinn við mér“? Besti undirbúningurinn fyrir Einhvern tíma munum við deyja Einhvern tíma munwn við deyja þú og ég Allir menn munu deyja og öll dýr og öll tré munu deyja og blómin á enginu en ekki öll í einu heldur smátt og smátt svo að varla tekst eftir því syrgjandann er að kennarinn komi heim til hans og í sameiningu ákveða þeir hvenær og hvernig nemandinn komi í skólann, jafnframt því að kennarinn skilar sam- úðarkveðjum frá félögum og starfsfólki. Ef nemandi missir ástvinutan skólatíma t.d. á sumrin er æskilegt að forráðamenn láti skólayfirvöld vita í skólabyrjun. Kennari verður einnig að vera fær um að styðja vini syrgjandans. Hvernig á átta ára stúlka að nálgast bestu vinkonu sína sem hefur dregið sig inn í skel og talar 17

x

Ný menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.