Ný menntamál - 01.06.1994, Side 24

Ný menntamál - 01.06.1994, Side 24
C ) bar upp á miðvikudag, því mið- vikudagar eru hátíðisdagar í Ask- erovaskóla. Þá safnast allur skólinn saman í Midjan og afrakstur vik- unnar er lagður fram. Nemendur skemmta sér og starfsfólkinu með söng, hljóðfæraleik, gátum, vísum og upplestri úr ritgerðum. Leik- og grunnskólinn er á eyj- unni Askerova og ber nafn hennar. Eyjan liggur yst í skerjagarðinum fyrir opnu hafi og tilheyrir sveitar- félaginu Flora á vesturströnd Nor- egs. Skólahúsið var byggt árið 1991. Úr öskunni af gamla skólanum sem brann veturinn 1990 reis þessi spennandi skóli. Blessaður brun- inn! er viðkvæðið á meðal foreldra, nemenda og kennara. Auk nýja skólans fengu eyjaskeggjar leik- skóla og skóladagheimili fyrir öll börn á eyjunni. I þessu litla byggð- arlagi með u.þ.b. 150-160 íbúa fengu 7-8 manns vinnu og kennar- arnir fleira samstarfsfólk. Kennar- ar í fámennum skólum kvarta svo oft yfir að þeir hafi of fátt sam- starfsfólk og að það skapi faglega einangrun og einmanaleika. Askerova er annar tveggja skóla í Sogn og Fjordane-fylki (á Svanöy í sama sveitarfélagi er skóli/leikskóli með svipuðu sniði) sem gerir til- raun til að sameina í einni stofnun leikskóla, skóladagheimili og grunnskóla. Á Askerova leik- og grunnskóla eru þrjár deildir; leik- skóladeild auk yngri og eldri deild- ar. í hverri deild er deildarstjóri sem ber ábyrgð á öllu uppeldis- og kennslufræðilegu starfi deildarinn- ar auk þess sem hann/hún skipu- leggur samvinnu við hinar deildirn- ar. Rétt er að geta þess að mikil áhersla er lögð á að nýta það besta í hverjum starfsmanni. Sem dæmi má nefna að deildarstjórinn á leik- skóladeildinni sér um alla náttúru- fræðikennslu í eldri deildinni og ein Að lokinni aðalœfingu. Kathríne kennaranemi ásamt nokkrum nemendum. af starfsstúlkunum á leikskóla- deildinni um alla handavinnu- kennslu í öllu deildum. Auk sam- eiginlegs rýmis s.s. „Midjan“, handavinnustofu og eldhúss, hefur hver deild sína föstu aðstöðu (kennslustofu) með stóru sameig- inlegu borði auk fastrar vinnuað- stöðu fyrir hvert barn. Að safnast saman í kringum borð er mikilvægt á Askerova. Hver vinnustund (sem varir í eina klukkustund) hefst við sameiginlega borðið. Þar eru málin rædd og fyrirmæli gefin, síðan hverfur hver til sinnar vinnuað- stöðu. Vinnuaðstaðan líkist mjög því sem við finnum á lestrarsölum þ.e.a.s. litlu borði með bókahillu og leslampa. Aldursblöndun Eftir bruna skólahússins, sem áður er um getið, var þróunarstarf- inu „Samfella í námi 0-13 ára barna“ hleypt af stokkunum og á að taka þrjú ár og hefur starfsfólk á Askerova haft veg og vanda af skipulagsvinnunni. Markmiðið er Nemendur 1.-6. bekkjar ásamt Solveig deildarstýru og kennaranemum. 24

x

Ný menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.