Ný menntamál - 01.06.1994, Síða 27

Ný menntamál - 01.06.1994, Síða 27
einnig oft einu opinberu stofnan- irnar upp til sveita. Sveitaskólinn er víða eini fasti samkomustaðurinn í hreppnum þar sem sveitungar hitt- ast og ræða landsins gagn og nauð- synjar. Skólinn á að mínu mati að vera hjartað í hverri sveit. Samfella í námi Leikskólar hafa margþættu hlut- verki að gegna. Leikskólar eru ekki bara geymslustaðir fyrir börn úti- vinnandi foreldra. Rannsóknir á seinni árum hafa sýnt fram á upp- eldisfræðilegt gildi þeirra. Eins og áður er vikið að læra börn hvert af öðru. Fámenni á sveitaheimilum er þekkt fyrirbæri, eldri systkini eru oftast í skóla víðs fjarri heimilinu allan daginn og víða alla vikuna í heimavist. Vélvæðingin hefur gert það að verkum að Massey Ferguson og c Alfa-Laval-mjaltavélar hafa tekið sæti vetrarmannsins og kaupakon- unnar og amma og afi jafnvel á elli- heimili í næsta kauptúni. Sveita- heimilin eru því ekki í sama mæli og áður vettvangur lærdóms fyrir börn sem ekki eru komin á skólaaldur. Að setja á stofn leikskóla í fátækum sveitahreppi er ef til vill stór biti fyrir sveitarstjórnina en umræða um möguleika á leikskólum í hin- um dreifðu byggðum er engu að síður tímabær. Til að tryggja gæði slíkra leik- skóla þarf að ráða til starfa sér- menntað starfsfólk (fóstrur). Það eru ef til vill draumórar að ætla að lítið jaðarbyggðarlag geti fengið til starfa sérmenntað starfsfólk í leik- skóla og það jafnvel í hálft starf. En draumurinn verður ekki eins óraunverulegur ef leikskólinn er byggður og rekinn í tengslum og ) eða í samvinnu við skólann. Slík samvinna kæmi öllum til góða, börnunum, foreldrum og báðum skólunum. Það er þessi hugsun sem liggur að baki starfsemi Askerova leik- og grunnskóla. Samstarf um samfellt nám og uppeldi barna. Aðstand- endur Askerova leik- og grunn- skóla tala um uppeldismiðstöðvar. I upphafi greinar minnar spurði ég hvort við hefðum eitthvað að læra af Askerova og ég er ekki í vafa um að svo sé. Heimildir og nánari upplýsingar fást hjá greinar- höfundi Sogndal lœrarhögskule PB 211, 5800 Sogndal, Norge sími: +90 47 57 67 62 66 fax: +90 47 57 67 62 17 tölvufang: Gjonsdottir@sognhs.slh.no Guðrún Jónsdóttir er lektor við Sogndal lærarhögskule í Noregi. Nýjar bækur frá l£?MÚ MANNKYNSSAGA 2 Haustið 1993 kom út kennslubók í mannkynssögu þar sem fjallað er um tímann frá því um 1850 til atburða síðustu missera og er þá einkum átt við þróun mála á meginlandi Evrópu. Bókin er þýdd úr dönsku og er í Danmörku gefin út af bókaforlaginu Gjellerup og Gad. Danska heitið er Verdens historie og höfundar eru: Tpnnes Bekker-Nielsen, John T. Lauridsen, Niels Kayser Nielsen, Henrik Skovgaard Nielsen, Thorsten Borring Olesen, Flemming Schmidt og Nils Ame Sprensen. Bráðlega verður geftnn út fyrri hluti verksins en þar er fjallað um söguna fram á miðja nftjándu öld BÓKMENNTAHEFTIIÐNÚ Bókmenntahefti IÐNÚ em einkum ætluð sem ítarefni við íslenskunám á framhaldsskólastigi. Út em komin Vonir og Marjas eftirEinarH. Kvaran,Á fjörunni og Þegar ég var áfregátunnieftir/ón Trausta.Að enduðum iöngum degi, I fásinninu og Lífið í brjósti manns eftir Indriða G. Þorsteinsson. Á næstunni eru væntanleg Sjávarljóð, sýnishorn íslenskra ljóða um sjó og siglingar í samantekt Eysteins Sigurðssonar og Tilhugalíf eftir Gest Púlsson. HLJÓÐFRÆÐI Ögn um hljóðfræði og framburð eftir Sigurborgu Hiimarsdóttur. Kveri þessu er ætlað að gefa framhalds- skólanemum auðskiljanlega mynd af flóknu fyrirbæri: hljóðkerfi íslensku og tslenskum framburði. IPNÚ bókaútgáfa, Iðnskólanum, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík, s. 91-623370, bréfas. 91-623497 IONÚ 27

x

Ný menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.