Golf á Íslandi - 01.12.2010, Side 76
76 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Fyrir tuttugu árum síðan voru Þjóðverjar aft-
arlega á merinni í golfíþróttinni. Þeir höfðu
að vísu einn súperkylfing sem var að hasla sér
völl í heimi atvinnumanna, Bernhard Langer.
Og hann var vítamínsprauta fyrir íþróttina í
sínu heimalandi. Golfið hefur vaxið ár frá ári á
undanförnum þremur áratugum og Sporting
Club Berlin er eina fimm stjörnu golfsvæðið af
sjötíu í Þýskalandi.
Sport og Spa resort A-Rosa við Scharmutzelvatn í Bad
Saarow, í um klukkustundar aksturfjarlægð frá hinni
stórskemmtilegu borg Berlín, er glæsilegt hótel og
golfsvæði þar sem boðið er upp á frábæra golfvelli,
tvo þeirra hannaða af stórstjörnunum Nick Faldo
og Arnold Palmer. Þarna er viðurgjörningur í stíl við
stjörnurnar m.a. veitingastaður með frægu Michelin
stjörnu og spa og dekuraðstaða er eins og hún gerist
best og líklega rúmlega það.
A-Rosa Scharmutzelsee hefur fengið margar við-
urkenningar í ferðaþjónustunni og í golfheiminum.
Svæðið hefur fengið margs konar verðlaun fyrir golf-
aðstöðuna, veitinga- og hótelþjónustu og Spa heilsu-
aðstöðuna. Það er því án nokkurs vafa hægt að mæla
með heimsókn á slíkan stað. Vissulega er hann ekki
sá ódýrasti en miðað við gæðin sem í boði eru þá
eru gestir Sporting Club Berlin að fá mikið fyrir pen-
inginn. Þar er hægt að blanda saman golfi, heilsu og
huggulegheitum og veitingaþjónustu af bestu gerð.
Jú, hljómar nokkuð flott og er það vissulega.
Í A-Rosa eru sjö saunaböð, þrjátíu meðferðarherbergi,
þrjár sundlaugar og sú stærsta, sem er úti er með
góðri sólbaðsaðstöðu.
Þrír 18 holu golfvellir prýða svæðið, tveir þeirra hann-
aðir af Nick Faldo og Arnold Palmer og Faldo-völl-
urinn þykir sá erfiðasti í landinu. Tvö æfingasvæði eru
í A-Rosa og 9 holu golfvöllur sem er hugsaður fyrir þá
sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Alls þekja
golfvellir og hótelgisting 300 hektara.
Þýskaland er stærra golfland en marga grunarG O L F vellir
Palmer og Faldo
Fimm stjörnu golf-„rísort“ í Berlín með
Svæðið er við Scharmutzel vatnið og við það eru veit-
ingastaðir og ýmis konar afþreying, bátar, skútur og
vatnasportafjör. Gistingin er margs konar en í boði
eru 224 herbergi, öll mjög vel búin en 22 þeirra eru
svítur. Starfsmenn á svæðinu eru 240.
Á fimm stjörnu svæði er fátt til sparað og það á ekki
síst við um golfvellina. Þó er hugsað um þá sem eru
styttra komnir á veg í íþróttinni. Faldo og Palmer vell-
irnir eru alvöru keppnisvellir og eins og fyrr segir er
Faldo-völlurinn sagður sá erfiðasti og einn sá glæsi-
legast í Þýskalandi.
Í stuttri kynningarferð okkar lékum við 18 holur á
Palmer og 9 holur á Faldo vellinum. Faldo hefur sett
sig í links-„gír“ því ef maður ímyndar sér að völlurinn
sé í nánd við sjó þá eru brautirnar og umhvefið þann-
ig. Þetta er links-„fílingur“ út í gegn en Faldo er mikill
áhugamaður um strandvelli og vill hanna sem flesta
slíka í heiminum. Þó sést auðvitað í tré á svæðinu
enda er golfsvæðið á mjög stóru og fallegu trjá rækt-
uðu landssvæði.
Á vellinum hafa verið haldin nokkur mjög stór
atvinnumannamót, m.a. German Open á Evrópu-
mótaröðinni, mót á Öldungamótaröð og Evrópu-
mótaröð kvenna og loks heimsmeistaramót áhuga-
manna.
Röffið er ekki vinalegt en margar brautirnar eru flott-
ar. Félagi Faldo hefur greinilega haft nokkra alvöru
links-velli í huga þegar hann hannaði völlinn. Hann
lét grafa 135 „pott“-glompur „a la Skotland“ og þá eru
flatirnar hafðar eins hraðar og hægt er og þær voru
það þegar við lékum völlinn í júní. framh. á bls. 78.
Loftmynd af svæðinu,
hótelbyggingar, höfnin og
golfvellirnir.
Púttað á 18. flötinni á Palmer vellinum.