Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 8
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
8
Hápunktur sumarsins
3.
T
BL
. J
ÚL
Í 2
01
4.
2
4.
Á
RG
.
G
O
LF Á ÍSLANDI JÚLÍ 2014
ÍSLANDSMÓTIÐ
Í HÖGGLEIK 2014
Á LEIRDALSVELLI
STÓRHUGA AKUREYRINGAR
VINSÆL Á VESTFJÖRÐUM
ÍSLANDSMEISTARASVEIFLA
SKIPTA STUTTU HÖGGIN MÁLI?
HINN SÍUNGI JIMENEZ
Á ÍSLANDI
Hið íslenska golfsumar hefur náð hápunkti
sínum. Eftir nokkuð brösulega byrjun hafa
flestir vellir landsins náð sér vel á strik þótt
sumir hafi aldrei náð sér að fullu eftir harðan
vetur. Við því er lítið annað að gera en að horfa
bjartsýnn til framtíðar og sætta sig við að svona
getur golfið á Íslandi verið. Við höfum verið
virkilega lánsöm með uppbyggingu golfvalla
undanfarin ár og þótt við þurfum að upplifa
smávægilegt hik þá gerir það ekkert til. Eftir
sem áður fengum við mun betri velli en óttast
var í byrjun sumars. Það má gleðjast yfir því og nýta aðstöðuna til fulls.
Mótahald og aðrir viðburðir hjá golfklúbbum landsins hafa ekki farið
fram hjá neinum, enda er dagskráin þétt á þessum tíma árs. Stórglæsi-
legum meistaramótum er nýlokið þar sem gríðarlegur fjöldi kylfinga
kom saman og keppti í mismunandi getuflokkum. Forgjöfin gerir það
að verkum að í golfi geta allir keppt við alla en í meistaramótunum fær
kylfingurinn að keppa við jafngóða keppendur án forgjafar. Það vekur
áhuga margra kylfinga og ekki að ástæðulausu. Góð blanda af keppni og
félagsskap er ávísun á skemmtilega viku. Þótt veðrið hafi ekki verið upp
á sitt besta þegar leikið var í meistaramótunum var sérstaklega ánægju-
legt að sjá hversu margir kylfingar tóku þátt og létu misjafnt veður ekki
á sig fá.
Nú er hápunkturinn í mótahaldi golfsambandsins framundan, sjálft
Íslandsmótið í höggleik. Að þessu sinni verður leikið á Leirdalsvelli hjá
Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Undirbúningur fyrir mótið hefur
staðið yfir svo mánuðum skiptir og hefur alla tíð verið til fyrirmyndar.
Stjórnendur og félagsmenn í GKG hafa lagt á sig ómælda vinnu svo
bestu kylfingar landsins fái að keppa um Íslandsmeistaratitilinn í karla-
og kvennaflokki og eiga þeir miklar þakkir skildar fyrir framlag sitt.
Ég veit að mótið verður frábær skemmtun fyrir kylfingana og alla þá
sem koma að því. Líkt og undanfarin ár verður sjónvarpað frá síðustu
tveimur keppnisdögunum í beinni útsendingu á RÚV. Útsendingin
er ómissandi þáttur í mótahaldinu og mikilvægt úrræði fyrir golf-
hreyfinguna til að breiða út boðskap golfíþróttarinnar. Á hverju ári er
mikill metnaður lagður í útsendinguna en með nokkurri vissu get ég
sagt að engin önnur Evrópuþjóð sjónvarpi beint frá áhugamannamóti
í golfi. Ég vona að sjálfsögðu að flestir leggi leið sína í Leirdalinn til að
fylgjst með mótinu en þeir sem ekki hafa tök á því geta horft á bestu
kylfinga landins heima í stofu.
Haukur Örn Birgisson,
forseti Golfsambands Íslands
Útgefandi/ábyrgðaraðili:
Golfsamband Íslands,
Laugardal, 104 Reykjavík.
Framkvæmdarstjóri: Hörður
Þorsteinsson, hordur@golf.is
Ritstjóri: Páll Ketilsson,
pket@vf.is
Textahöfundar í þessu blaði:
Sigurður Elvar Þórólfsson og
Páll Ketilsson.
Prófarkalestur:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir.
Ljósmyndir: Páll Ketilsson,
Sigurður Elvar Þórólfsson, Páll
Orri Pálsson, Stefán Garðarsson,
Helga Magnúsdóttir og fleiri.
Þýðing á erlendu efni frá Golf
World og Today´s Golfers:
Björn Malmquist
Útlit og umbrot:
Víkurfréttir, Páll Ketilsson og
Jóhann Páll Kristbjörnsson.
Auglýsingar: Stefán Garðarsson,
stebbi@golf.is
símar 514 4053 og 663 4656
Blaðinu er dreift inn á öll
heimili félagsbundinna
kylfinga á Íslandi í 15.000 ein-
tökum.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Næsta tölublað kemur út í
október.
FORSETAPISTILL
Frábært úrval aF
ecco GolFskóm
Graeme mCdowell
Ecco - kringlan
Steinar Waage - Smáralind
Skóbúðin Húsavík
Golfbúðin - Hafnarfirði
GolfSkálinn - Reykjavík
Skóbúðin - Keflavík
Nína - Akranesi
Skóbúð - Selfoss
Axel Ó - Vestmannaeyjum
Skór.is - netverslun
Eagle Akureyri
Örninn golfverslun Reykjavík
Hole In One -Reykjavík
Caroline masson
Goleikjaskólinn 15 ára
,,Frumkvöðull í að hvetja konur til golðkunar”
Goleikjaskólinn golf@goleikjaskolinn.is
Sími 691 5508 www.goleikjaskolinn.is