Golf á Íslandi - 01.07.2014, Qupperneq 26
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
26
Kristján Þór Einarsson úr Kili Mosfellsbæ
sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni,
Securitasmótinu, sem fram fór við frábærar
aðstæður á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði 27.-
29. júní. Þetta er í annað sinn sem Kristján
Þór hampar þessum titli en hann lék til úr-
slita gegn Bjarka Péturssyni úr Golfklúbbi
Borgarness og hafði þar betur 2/1.
GR-ingarnir Stefán Már Stefánsson og
Haraldur Franklín Magnús léku um þriðja
sætið og þar sigraði Stefán 2/1.
Keppnisfyrirkomulagið á Securitasmótinu
var með þeim hætti að keppendum er raðað
niður í átta riðla og voru fjórir kylfingar í
hverjum riðli. Í riðlakeppninni léku allir
kylfingarnir þrjá leiki og sigurvegararnir
í hverjum riðli komst í átta manna úrslit.
Raðað var í riðla eftir stöðu keppenda á
stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.
Kristján Már Einarsson GKj., Birgir Leifur
Hafþórsson GKG, Haraldur Franklín
Magnús GR, Heiðar Davíð Bragason GHD,
Benedikt Árni Harðarson GK, Stefán Már
Stefánsson GR, Bjarki Pétursson GB og
Rúnar Arnórsson GK léku í átta manna
úrslitum.
Kristján Þór lagði Birgi Leif Hafþórsson í átta
manna úrslitum 2/0, og hann sigraði Harald
Franklín Magnús í undanúrslitum.
Bjarki mætti Rúnari Arnórssyni í átta manna
úrslitum og hafði betur 2/0, og Bjarki sigraði
Stefán Má Stefánsson í undaúrslitum í mögn-
uðum leik á 20. holu. Þar stóð upp úr þegar
Stefán Már bjargaði
parinu á 18. holu með
ævintýralegu innáhöggi
þar sem hann sló örv-
hent í þriðja högginu
og setti síðan niður
um 7 metra pútt til að
komast í bráðabana
gegn Bjarka.
Í úrslitaleiknum á
milli Kristjáns Þórs og
Bjarka náði Kristján að
komast yfir strax á 1.
holu, en Bjarki náði að
jafna á þeirri 5. þar sem
Kristján þurfti að taka víti eins og sjá má á
myndinni hér til hliðar.
Næstu fjórar holur féllu og það var því allt
jafnt eftir 9 holur.
Kristján Þór náð að vinna 10., 11. og 12. og
hann var í sterkri stöðu þegar þeir slógu
upphafshöggin á 13. teig. Á 13. lenti Kristján
Þór í gríðarlega erfiðri stöðu þegar hann sló
annað höggið ofaní glompuna sem er hægra
megin við flötina. Hann hafði nánast ekkert
svæði til að vinna með en með ótrúlegum
hætti náði Kristján Þór að koma boltanum
í 1,5 m. fjarlægð frá holunni. Hann bjargað
parinu og átti þrjár þegar komið var á 14.
Bjarki náði að vinna eina holu til baka á 14.
með pari – en á 15. sló Kristján eitt besta
högg mótsins með 3-tré af 240 metra færi og
„klíndi“ boltanum upp við holuna. Hann átti
því 3 en Bjarki vann eina holu til baka á 16.
með því að fá par.
Bjarki fékk gott tækifæri til þess að vinna
aðra holu til baka á 17. flöt en um 2 metra
pútt hans fyrir fugli krækti í holubarminn og
KRISTJÁN ÞÓR
lét verkin tala á Hvaleyrinni
- fagnaði sigri gegn Bjarka Péturssyni
á Íslandsmótinu í holukeppni,
Securitasmótinu.
Stefán Már Stefánsson slær hér
magnað högg örvhent við 18.
flötina í undanúrslitaleiknum
gegn Bjarka Péturssyni.
Kristján Þór ásamt fjölskyldu sinni.
Einar faðir hans, Hrafnhildur Lilja
dóttir hans og Marý Valdís
unnusta hans sem á von
á sér í ágúst.