Golf á Íslandi - 01.07.2014, Side 64
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
64
Básar er glæsilegasta æfingasvæðið á Íslandi og er opið fyrir alla. Við hlið Bása
er Grafarkotsvöllur, glæsilegur 6 holu æfingavöllur. Völlurinn er tilvalinn
byrjendavöllur fyrir þá kylfinga sem eru að taka sín fyrstu skref í golfíþróttinni.
Samhliða Grafarkoti er glæsileg púttflöt og vippflöt. Þeir aðilar sem eru skráðir
í Golfklúbb Reykjavíkur fá frían aðgang að Grafarkotsvelli en aðrir geta greitt
daggjald eða keypt sumarkort á völlinn.
Það eru allir velkomnir í Bása.
FYRIR ALLA ALLT ÁRIÐ
PROGOLF er rekstraraðili að Básum. PROGOLF býður einnig víðtæka
þjónustu við golfkennslu fyrir byrjendur eða lengra komna. Allar
nánari upplýsingar er að nna á www.progolf.is eða í síma 555 7200
Básar við Grafarholtsvöll
110 Reykjavík • Sími 555 7202
www.basar.is
besta ængasvæðið
Þú finnur opnunartímann í Básum á
www.progolf.is
SILFURKORT
10%
FLEIR
I
BOLT
AR
GULLKORT
15%
FLEIR
I
BOLT
AR
PLATÍNUKORT
25%
FLEIR
I
BOLT
AR
DEMANTSKORT
35%
FLEIR
I
BOLT
AR
Gjafakort
PROGOLF
er frábær leið
til að gleðja.
KOMDU OG ÆFÐU
Í BÁSUM
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Básar - Progolf auglýsing Golf á Íslandi Sumar 2012.ai 1 20/04/12 12:16:16
Sigmundur náði að landa sínum fyrsta stóra
titli þegar hann sigraði á Íslandsmótinu í
holukeppni unglinga sem fram fór á Urriða-
velli árið 2000.
Fyrsti stóri titillinn
„Minn fyrsti stóri titill var á Íslandsmótinu
í holukeppni unglinga árið 2000 – 18 ára
og yngri. Ég var að verða 17 ára á þessum
tíma en mótið fór fram á Urriðavelli. Það
var bara einn flokkur og nánast í fyrsta sinn
sem ég spilaði af hvítum teigum. Skömmu
síðar fékk ég mitt fyrsta landsliðsverkefni
með unglingalandsliðinu á Norðurlanda-
mótinu. Ég náði að leika til úrslita um
Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni árið 2003
gegn Haraldi Heimissyni úr GR á Hólms-
velli í Leiru – tapaði þeim leik enda var logn
í Leirunni sem kom verulega á óvart,“ segir
Sigmundur í léttum tón.
Sigmundur segir að hann hafi tekið stórt
stökk sem kylfingur þegar hann fór að æfa
undir stjórn Andrésar Davíðssonar – sem var
á þeim tíma að þjálfa Birgi Leif Hafþórsson.
Þar hafi nýjar víddir opnast hjá Sigmundi.
Fékk nýja sýn á golfið
„Ég var í miklum vandræðum með golfið
mitt árið 2005. Ég hafði samband við Birgi
Leif Hafþórsson félaga minn hjá GKG og
hann benti mér á að tala við Andrés Davíðs-
son golfþjálfara. Samstarfið við Andrés hófst
á þessum tíma og við vinnum saman um
veturinn 2005-2006. Sumarið 2006 fór allt
að smella saman og ég áttaði mig á því að ég
hafði ekki verið heilsteyptur kylfingur. Andr-
és opnaði hug minn fyrir svo mörgu. Sem
dæmi má nefna að leikskipulagið sem hann
setti upp með mér á Urriðavelli var mjög gott
og ég fékk bara nýja sýn á golfið eftir að ég
fór að vinna með Andrési. Á sjálfu Íslands-
mótinu í höggleik á Urriðavelli var ég nánast
á „sjálfstýringu“ – það gekk nánast allt upp,
ég efaðist aldrei um höggin sem ég sló, og
sjálfstraustið var mikið á þessum tíma. Árið
2006 var mitt besta ár. Ég vann tvö háskóla-
golfmót í Bandaríkjunum og einnig Opna
austurríska meistaramótið – og Íslandsmótið
í höggleik á Urriðavelli.“
Eins og margir aðrir fór Sigmundur í nám
til Bandaríkjanna þar sem hann lék golf
samhliða háskólanáminu. Hann ætlaði sér
í atvinnumennsku haustið 2008 en efna-
hagshrunið á Íslandi hafði þau áhrif að sá
draumur var lagður á hilluna.
„Ég fór út sumarið 2003 í McNeese State
University háskólann í Bandaríkjunum.
Fyrsta árið spilaði ég ekki með skólaliðinu en
haustið 2004 komst ég inn í liðið. Ég keppti
fyrir skólann í fjögur ár. Eftir að háskóla-
náminu lauk og HM áhugamanna árið 2008.
Vildi lifa drauminn og reyna að ná lengra.
Það var margt jákvætt að gerast hjá mér
sumarið 2008. Ég var búinn að leggja drög að
því að reyna við atvinnumannadrauminn um
haustið 2008 og ég var að leika vel. Síðan skall
á efnahagshrun hér á Íslandi og víðar, og ekk-
ert varð af þessum áformum. Ég framlengdi
því dvölina í Bandaríkjunum um eitt ár og
starfaði sem aðstoðarþjálfari hjá skólanum
mínum.“
Sigmundur Einar starfar í dag hjá trygginga-
félaginu Verði og hefur hann ekki mikinn
tíma til að æfa sig – en keppnisskapið er enn
til staðar.
„Ég get alveg slegið boltann en æfinga-
leysið kemur alltaf niður á heildarskorinu. Í
meistaramótinu átti ég ekki möguleika gegn
Emil Þór Ragnarssyni sem vann verðskuldað
í meistaraflokknum. Á Íslandsmótinu í högg-
leik ætla ég að njóta þess að spila á mínum
heimavelli. Þetta er eitthvað sem ég hef látið
mig dreyma um lengi og það verður mikil
upplifun fyrir okkur sem hafa alist upp hér
hjá GKG að fá að taka þátt í þessu ævintýri.
Markmiðið er að njóta þess að vera með en
að sjálfsögðu fer maður alltaf í öll mót til
þess að vinna þau,“ sagði Sigmundur Einar
Másson.
„Leikskipulagið sem hann setti upp með mér á
Urriðavelli var mjög gott og ég fékk bara nýja sýn
á golfið eftir að ég fór að vinna með Andrési. Á
sjálfu Íslandsmótinu í höggleik á Urriðavelli var
ég nánast á „sjálfstýringu“ – það gekk nánast allt
upp, ég efaðist aldrei um höggin sem ég sló, og
sjálfstraustið var mikið á þessum tíma.“
Simmi sjóðheitur á
leiðinni að tryggja
sér Íslandsmeistarar-
titilinn á Urriðavelli
árið 2006.