Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 68
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
68
Árið 2007 var efri hluti Leirdalsvallar tekinn í notkun og hefur völlurinn orðið betri með
hverju árinu sem liðið hefur. Síðustu 14 mánuðir hafa hins vegar verið gríðarlega erfiðir
þar sem að mikil úrkoma og klaki hafa sett svip sinn á verkefni vallarstarfsmanna GKG.
„Þetta er búið að vera gríðarlega erfitt ár hvernig sem við lítum á það. Við teljum okkur
vera á réttri leið og völlurinn verður í toppstandi þegar Íslandsmótið í höggleik hefst.
Við fengum svakalega mikið kal í völlinn í brautir og teiga í vetur – en náðum að bjarga
flötunum í 98% tilvika. Við höfum lagt mikla vinnu í að koma vellinum í gott ástand eftir
veturinn og beitt öllum brögðum sem finnast í þessu fagi.“
Klaki laminn í tíu vikur
Sem dæmi um óvenjulegt vinnuálag í vetur
þá voru þrír starfsmenn sem gerðu ekkert
annað í 10 vikur en að lemja klaka af flötum
Leirdalsvallar.
„Þeir voru í öllum veðrum úti á velli í 2½
mánuð. Þeir notuðu tæki sem kallast „slitter“
sem er stórt kefli með stjörnujárnum sem
sett er aftan í traktor sem dregur tækið yfir
flatirnar. Þeir voru einnig með stóran blásara
með í för sem blés klakann af flötunum. Við
fengum mikla þekkingu og reynslu eftir
veturinn og það voru margir sem töldu að
þessi vinna sem við vorum að leggja í að
koma klakanum af flötunum myndi ekki
gera neitt gagn. Frá upphafi höfðum við trú á
þessu. Það voru engin efni notuð til að vinna
á klakanum og árangurinn var ásættanlegur
miðað við hvað þetta leit illa út í vetur.“
Eftir vetrarbaráttuna við klakann fór
ástandið að lagast en það var aðeins í nokkra
daga í minningunni hjá Guðmundi því það
fór að rigna eins og hellt væri úr fötu í byrjun
júní.
„Úrkoman hefur gert okkur erfiðara um vik
í sumar – það er alveg komið nóg af vatni í
völlinn. Ég get lofað því. Við höfum mest
verið að vinna í 15. brautinni sem hefur
vanalega verið hvað erfiðust viðureignar
hvað gæði varðar. Þar er lægsti punkturinn
í dalnum og þar safnast mikil bleyta. Það
þarf að gera meira á því svæði. Við höfum
líka séð eftir síðasta sumar og það sem af
er þessu sumri að það eru ýmis vandamál
sem við þurfum að laga hvað varðar bleytu á
vellinum. Það er vinna sem mun taka langan
tíma.“
Aldrei vafi með Íslandsmótið
Þrátt fyrir ýmis áföll í vetur hefur Guð-
mundur aldrei efast um að Íslandsmótið ætti
að fara fram á Leirdalsvelli.
„Ég hef aldrei efast um að við gætum haldið
Íslandsmótið með glæsibrag þrátt fyrir allt
sem hefur gengið á í vetur og sumar. Vanda-
málin hafa frekar eflt mig og starfsfólkið
frekar en að draga úr okkur kraftinn. Við
höfum verið að vinna að þessu í nokkur ár
og staðan hefur vissulega verið erfið í vetur
og sumar. Ef árferðið hefði verið eðlilegt í
vetur og sumar værum við að ræða allt aðra
hluti. Síðasta sumar var gríðarlega blautt,
veturinn var ótrúlegur í alla staði og það sem
af er þessu sumri hefur úrkoman verið langt
yfir meðaltali. Við tökumst á við þessi vanda-
mál sem verkefni sem þyrfti að leysa.“
Flatahraði gæti orðið 9 á stimp
Það fylgir því mikil ábyrgð að stjórna að-
gerðum hjá vallarstarfsmönnum á meðan
Íslandsmótið í höggleik stendur yfir. Guð-
mundur á von á því að geta boðið upp á
sanngjarnan hraða á flötunum.
„Við eigum að geta kreist góðan hraða á flöt-
unum, 9 stimpmetrar og eitthvað þar yfir er
það sem við stefnum að. Hraðinn var um 8
stimpmetrar á meðan meistaramót GKG fór
fram en við munum nota allar þær aðferðir
sem eru þekktar til þess að ná upp góðum
en sanngjörnum hraða á flatirnar á meðan
Íslandsmótið fer fram. Aðstæður spila líka
stórt hlutverk – ef vindurinn fer af stað þá
þurfum við að gæta hófs og fara varlega –
svo að boltinn fjúki ekki af flötunum. Það
verður allt slegið á hverjum degi, flatir, teigar,
brautir og „röffið“ eins og þarf til að halda
því eins og við viljum hafa það.“
Gríðarlega skemmtilegt verkefni
Rúmlega 20 manns verða að störfum eld-
snemma morguns alla keppnisdagana og sjá
þeir til þess að allt verði í toppstandi þegar
kylfingarnir hefja leik.
„Það eru um 30 manns að vinna á vellinum
yfir hásumarið og það eru rúmlega 20 sem
mæta á vaktina eldsnemma að morgni og
fara í þau verk sem þarf að vinna. Sem dæmi
má nefna að það eru 90 glompur á vellinum
og það þarf að raka þær allar að morgni
– það eru tveir menn í því. Við nýttum
meistaramótið til þess að prufukeyra hvernig
við vildum gera þetta á Íslandsmótinu og
við erum tilbúnir og spenntir að takast á
við þetta verkefni. Mýrin verður notuð
sem æfingasvæði fyrir keppendur og þar
ættu kylfingar að geta gengið að svipuðum
gæðum á flötunum og eru á Leirdalsvelli
á meðan mótið fer fram. Það er gríðarlega
gaman að fá að vera hluti af þessu ævin-
týraári hjá klúbbnum. 20 ára afmæli og
loksins farið að hylla undir nýtt klúbbhús
og það er kraftmikið og gott starf í gangi hjá
GKG,“ sagði Guðmundur Árni Gunnarsson
við Golf á Íslandi.
„Það eru um 30 manns að vinna á vellinum yfir hásumarið og það eru rúmlega
20 sem mæta á vaktina eldsnemma að morgni og fara í þau verk sem þarf að
vinna. Sem dæmi má nefna að það eru 90 glompur á vellinum og það þarf að
raka þær allar að morgni – það eru tveir menn í því.“
Hér má sjá Leirdalsvöll í júlí og svo í febrúar 2014 þegar klaki lá yfir
stórum hluta vallarins eins og sjá má hér á myndinni. STEFNAN RÆÐUR
ÁFANGASTAÐNUM
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-2
4
2
1
VÖNDUÐ EINKABANKAÞJÓNUSTA
STJÓRNAST AF MARKMIÐUM VIÐSKIPTAVINARINS
Einkabankaþjónusta Arion banka veitir einstaklingum, fyrirtækjum, sjóðum
og stofnunum víðtæka fjármálaþjónustu sem sniðin er að þörfum hvers og eins.
· Þinn eiginn viðskiptastjóri sem mótar með þér fjárfestingarstefnu og sér
um þitt eignasafn.
· Sterk tengsl við viðskiptastjóra með símtölum, tölvupósti og reglulegum
fundum sé þess óskað.
· Ítarlegt yfirlit um stöðu og ávöxtun á þriggja mánaða fresti.
· Öll almenn bankaþjónusta á hagstæðum kjörum.
Pantaðu viðtal við viðskiptastjóra í síma 444 7410 eða sendu póst
á einkabankathjonusta@arionbanki.is og komdu þínum fjármálum
í hagstæðari farveg.
ARION EINKABANKAÞJÓNUSTA