Golf á Íslandi - 01.07.2014, Síða 94
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
94
Stúlknaflokkur 17-18 ára:
1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
2. Birta Dís Jónsdóttir, GHD
3. Helga Kristín Einarsdóttir, NK
Piltaflokkur 17-18 ára:
1. Tumi Hrafn Kúld, GA
2. Aron Snær Júlíusson, GKG
3. Birgir Björn Magnússon, GK
Telpnaflokkur 15-16 ára:
1. Ólöf María Einarsdóttir, GHD
2. Saga Traustadóttir, GR
3. Eva Karen Björnsdóttir, GR
Drengjaflokkur 15-16 ára:
1. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG
2. Hákon Örn Magnússon, GR
3. Kristján Benedikt Sveinsson, GA
Stelpuflokkur 14 ára og yngri:
1. Kinga Korpak, GS
2. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
3. Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir,
GHD
Strákaflokkur 14 ára og yngri:
1. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
2. Birkir Orri Viðarsson, GS
3. Ingvar Andri Magnússon, GR
úrslita gegn Birki Orra Viðarssyni úr GS.
Sigurður Arnar sigraði 3/2. Ingvar Andri
Magnússon úr GR varð þriðji en hann
sigraði Ragnar Má Ríkharðsson úr Kili 4/3 í
leiknum um þriðja sætið.
Ingvar Andri hafði fyrir mótið sigrað með
nokkrum yfirburðum á fyrstu tveimur mót-
unum á Íslandsbankamótaröðinni. Sigurður
Arnar sigraði Ingvar Andra í undanúr-
slitum 1/0. Birkir Orri sigraði Ragnar Má í
undanúrslitum 3/2. Þess má geta að Sigurður
Arnar er bróðir Ragnars Más Garðarssonar
sem hefur sigrað á tveimur mótum af alls
þremur á Eimskipsmótaröðinni.
Kinga Korpak úr GS hélt sigurgöngu sinni í
stelpuflokki 14 ára og yngri. Kinga er aðeins
10 ára gömul en hún hefur sigrað á öllum
þremur mótunum á Íslandsbankamóta-
röðinni. Kinga mætti Andreu Ýr Ásmunds-
dóttur úr GA í úrslitum og þar hafði Kinga
betur 5/4. Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir frá
Golfklúbbnum Hamri á Dalvík varð þriðja
en hún sigraði Zuzanna Korpak úr GS 2/0.
Í undanúrslitum mættust systurnar Kinga
og Zuzanna og lauk þeim leik með 1/0 sigri
Kinga. Í hinni viðureigninni áttust við Andr-
ea og Snædís og þar hafði Andrea betur 4/2.
Íslandsmótið í holukeppni unglinga var
eftirminnilegt hjá Ólöfu Maríu Einars-
dóttur úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík.
Ólöf gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi
í undanúrslitum keppninnar gegn Evu
Karen Björnsdóttur úr GR. Ólöf sló með
9-járni á 8. braut vallarins.
„Boltinn var allan tímann á leiðinni ofan í
og þetta var frábært högg,“ sagði Ólöf við
Golf á Íslandi og Björgvin Sigurbergsson
íþróttastjóri Keilis í Hafnarfirði tók undir
orð hennar. „Ég stóð fyrir aftan teiginn og
sá alltaf að þetta högg myndi fara ofan
í,“ bætti Björgvin við. Ólöf María er með
miðið á hreinu því hún fór tvívegis holu í
höggi í fyrrasumar á aðeins fjögurra vikna
tímabili í júlí og ágúst. Fyrst á þriðju holu
á Arnarholtsvelli á Dalvík og svo á fyrstu
holu á Selsvelli á Flúðum.
ÓLÖF MARÍA MEÐ MIÐIÐ Á HREINU
- þriðja draumahöggið á rúmu ári
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á
sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband
við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem
hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og
unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum
eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við
notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
V
O
L1
30
10
2
Verkir í
hálsi og
öxlum?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi við
verkjum í hálsi
og öxlum!
Hinn stórefni-
lega Sigurður
Garðarsson.
Kinga Korpak,
undrastelpan úr
Keflavík vann
þriðja sigurinn í röð
á mótaröðinni.
Fannar Ingi
Steingrímsson.
Góð þátttaka var
í mótinu. Hér er
Helgi S. Björg-
vinsson á teig á
Urriðavelli.