Golf á Íslandi - 01.07.2014, Qupperneq 96
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
96
Fjölmennur hópur íslenskra kylfinga tók
þátt á unglingamótinu Finnish Internatio-
nal sem fram fór í Finnlandi 25.-27. júní.
Alls tóku 17 íslenskir kylfingar þátt og
náði Sigurður Arnar Garðarsson bestum
árangri í flokki 14 ára og yngri. Sigurður
var í toppbaráttunni alveg fram á loka-
hringinn en hann endaði í öðru sæti á +7,
samtals á 54 holum, en hann var þremur
höggum frá efsta sætinu.
„Þetta var mjög skemmtilegt og völlurinn var
erfiður. Við lékum á gulum teigum og þetta
var lengra en á mörgum völlum hér á Íslandi.
Flatirnar voru líka erfiðar með miklu lands-
lagi,“ sagði Sigurður Arnar við Golf á Íslandi
en lengd keppnisvallarins var rétt rúmlega
5.600 metrar.
Kristófer Karl Karlsson úr Kili varð fjórði og
Ingvar Andri Magnússon úr GR varð fimmti
en þeir léku allir í 14 ára og yngri flokknum.
Keppt var í tveimur aldursflokkum hjá báðum
kynjum, 14 ára og yngri, og 15-16 ára.
Henning Darri Þórðarson úr Keili varð átt-
undi í flokki 15-16 ára en hann lék samtals
á 8 höggum yfir pari vallar. Fannar
Ingi Steingrímsson úr GHG endaði
í 15. sæti en hann lék samtals á 12
höggum yfir pari.
Eva Karen Björnsdóttir úr GR endaði í 14.
sæti í 15-16 ára flokknum en íslensku kepp-
endurnir voru jafnir í þessum flokki.
Fararstjórar hópsins voru Úlfar Jónsson,
Derrick Moore og Brynjar Eldon Geirsson.
Lokastaðan eftir 54 holur:
Piltar 14 ára og yngri: (48 keppendur)
2. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG 74-73-76 (+7)
4. Kristófer Karl Karlsson, GKj 82-74-75 (+15)
5. Ingvar Andri Magnússon, GR 75-81-76 (+16)
14. Ingi Rúnar Birgisson, GKG 86-78-76 (+24)
32. Magnús Friðrik Helgason, GKG 80-88-88 (+40)
Piltar 15-16 ára (60 keppendur)
8. Henning Darri Þórðarson, GK 77-73-74 (+8)
15. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG 73-77-78 (+15)
33. Kristján Benedikt Sveinsson, GA 80-77-80 (+21)
33. Arnór Snær Guðmundsson, GHD 79-75-83 (+21)
40. Hlynur Bergsson, GKG 82-78-80 (+24)
44. Jóel Gauti Bjarkason, GKG 81-82-82 (+29)
46. Bragi Aðalsteinsson, GKG 81-82-83 (+30)
49. Helgi Snær Björgvinsson, GK 84-86-78 (+32)
Stúlkur 15-16 ára (33 keppendur)
14. Eva Karen Björnsdóttir, GR 86-80-81 (+31)
15. Saga Traustadóttir, GR 82-80-86 (+32)
15. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 87-78-83 (+32)
23. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR 87-93-82 (+46)
GÓÐUR ÁRANGUR
Í FINNLANDI
- 17 íslenskir kylfingar
tóku þátt á unglinga-
mótinu Finnish
International
Flottur finnskur golffatnaður, hannaður fyrir
norðlægar slóðir. Catmandoo er
samstarfsaðili finnska golfsambandsins.
Bolur: 8.990 kr.
Buxur: 9.990 kr.
Regnjakki: 19.990 kr.
Regnbuxur: 14.990 kr.
Pólobolur: 7.990 kr.
Bolur: 6.990 kr.
Buxur: 9.990 kr.
Bolur: 6.990 kr.
Buxur: 9.990 kr.
Bæjarlind 14 Kópavogi Sími 577 4040 www.holeinone.is