Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 102

Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 102
Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? Ég byrjaði í golfi 10 ára með því að fara á námskeið hjá Árna Jóns hérna á Akureyri og ég vissi að mamma og pabbi elskuðu golf þannig ég ákvað að gefa þessu séns og ég endaði á því að elska þessa íþrótt. Hvað er það sem heillar þig við golf? Það sem heillar mig við golf er að allt er mögulegt, það getur allt snúist við á einni holu. Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Mínir framtíðardraumar eru komast í háskóla úti, byrja smátt á litlu mótaröðunum þar og vinna mig upp. Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undanförnum árum? Ég hafði verið að bæta mig pínulítið með hverju árinu en núna þá er ég búinn að bæta mig ótrúlega mikið, slæ beinna og lengra, töl- fræðin orðin miklu betri hjá mér og ég vonast til að forgjöfin lækki mikið í sumar. Hver er þinn helsti kostur og galli í golfinu og hvers vegna? Minn helsti kostur er að ég gefst aldrei upp og ókostur er að ég æfi mig ekki nógu markvisst. Hvað er það sem þú ætlar helst að bæta í sumar? Ég ætla að bæta stutta spilið í sumar. Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? Eftirminnilegasta atvik sem ég man eftir er þegar ég spilaði með Fannari Inga á Hellu 2013, þetta var ótrúlegasti hringur sem ég hef séð. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvell- inum? Ég hef ekki lent í neinu voðalega vandræðalegu úti á golfvelli. Þegar ég var 12 ára var ég beðinn um að ná í nándarverðlauna- rblað á 6. holu á Jaðarsvelli og ég fékk golfbíl til að ná í mið- ann. Ég keyrði óvart í litla holu á veginum og eyðilagði golfbílinn og framkvæmdarstjórinn var brjálaður. Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Uppáhaldskylfingurinn minn er Ian Poulter, hann gengur í svo flottum fötum og er með gott hugarfar. Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Ég er í Verkmenntaskólanum á Akureyri og það gengur rosalega vel. Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Ég æfi mig á hverjum degi og ég reyni að æfa mig að minnsta kosti 2 tíma á dag yfir sumarið en yfir veturinn þá æfi ég mig minna vegna skólans og vinnu. Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Uppáhalds golfvöllurinn minn er Urriðavöllur, hann er svo flottur og hann hentar mér mjög vel. Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér? 3. holan á Akranesi, Bergvíkin í Leirunni og 7. holan á Urriðavelli. Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér með- töldum? Það er auðvitað pabbi gamli, Rory McIlroy og Bill Murray. Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Fótbolti. UNGUR & EFNILEGUR – TUMI HRAFN KÚLD ÁKVAÐ AÐ GEFA ÞESSU „SÉNS“ STAÐREYNDIR: Nafn: Tumi Hrafn Kúld Aldur: 17 ára Forgjöf: 4,4 Klúbbur: Golfklúbbur Akureyrar Uppáhaldsmatur: Píta Uppáhaldsdrykkur: Vatn Uppáhaldskylfa: Pútterinn Ég hlusta á: Allt Besta skor: 68 á Jaðarsvelli Rory McIlroy eða Tiger Woods? Tigerinn Strand- eða skógarvellir? Strandvellir Besta vefsíðan: kylfingur.is Besta blaðið: Golf á Íslandi Besta bókin: Grafarþögn er í miklu uppáhaldi Besta bíómyndin: Rain man Hvað óttastu mest í golfinu? Ég óttast ekki neitt Golfpokinn Dræver: Titleist 913 D3 Brautartré: Titleist 910 F Járn: Mizuno MP4 Fleygjárn: Titleist Vokey 52, 56 og 60 gráður Pútter: Scotty Cameron Montery 1.5 Hanski: Footjoy GT Xtreme Skór: Ecco Bio GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 102
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.