Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 106
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
106
Opnunartími:
Virka daga: 08.00 – 18.00
Laugardaga: 10.00 – 14.00
Dönsum
á pallinum
í sumar
Veljum íslenskt
Viðar hálfþekjandi, Viðar þekjandi,
Viðar er gæða viðarvörn.
Bestun Birtingahús
Dugguvogi 4 Rvk. - Borgartúni 22 Rvk. - Dalshrauni 11 Hf j. - Furuvöllum 7 Ak. - slippfelagid.is
Mo Martin sýndi það og sannaði að margur
er knár þótt hann sé smár þegar hún sigraði á
Opna breska meistaramótinu í kvennaflokki
sem fram fór á Royal Birkdale í Southport
á Englandi. Martin, sem er bandarísk, lék
samtals á 1 höggi undir pari en þar á eftir
komu þær Shanshan Feng frá Kína og Suzann
Pettersen frá Noregi á pari vallar samtals.
Inbee Park frá Suður-Kóreu varð fjórða á +1
samtals en hún var efst fyrir lokahringinn.
Emma Talley sigraði í keppni áhugamanna en
hún var samtals á +6.
Martin, sem er aðeins 158 cm á hæð gerði
sér lítið fyrir og fékk örn á lokaholunni þegar
hún þurfti mest á því að halda. Martin sló
með 3-tré í öðru högginu á 18. braut Royal
Birkdale og fór boltinn í stöngina. Hún átti
um 2 metra pútt fyrir erni sem hún setti síðan
ofaní og tryggði sér sigurinn á þessu risamóti.
Þrír kylfingar áttu eftir að ljúka leik þegar
Martin hafði lokið keppni en þeim tókst
ekki að bæta skor hennar og Martin fagnaði
sigrinum klukkustund eftir að hún hafði sett
púttið ofani.
mótum.
„Ég get ekki slegið lengra með 3-trénu. Ég
vissi ekkert hvar boltinn myndi enda og
ég öskraði „sittu“ og „áfram með þig“ til
skipis þangað til ég heyrði að boltinn small í
stönginni. Þá sagði ég „Guð minn góður“ og
fór að hlægja,“ sagði Martin eftir höggið.
Bandarískir kylfingar eru að sækja í sig veðrið
á LPGA mótaröðinni því í fyrsta sinn frá
árinu 1999 eru bandarískir kylfingar sigur-
vegarar á fyrstu þremur risamótum ársins á
LPGA. Lexi Thompson (Kraft Nabisco) og
Michelle Wie (Opna bandaríska).
Martin, sem er 31 árs gömul, var að sigra í
fyrsta sinn á risamóti og þetta er jafnframt
fyrsti sigur hennar á LPGA mótaröðinni.
Hún hefur verið lengi að koma sér inn á
LPGA mótaröðina en á síðustu sex árum
hefur Martin verið að leika á Symetra móta-
röðinni en á síðustu tveimur árum hefur hún
verið á LPGA mótaröðinni.
Michelle Wie fagnaði fyrsta á Pinehurst
Michelle Wie sigraði á Opna bandaríska
meistaramótinu í kvennaflokki sem fram fór
á Pinehurst 2 vellinum. Mótið fór fram viku
eftir að Þjóðverjinn Martin Kaymer hafði
sigrað á Opna bandaríska meistaramótinu í
karlaflokki á þessum sama velli.
Þetta er í fyrsta sinn sem hin 24 ára gamla
Wie sigrar á risamóti en hún hefur verið í
fremstu röð allt frá því hún kom fyrst fram
á sjónarsviðið fyrir áratug. Wie lék loka-
hringinn á 70 höggum og lék hún samtals á
2 höggum undir pari vallar. Hún var sú eina
sem náði að leika hringina fjóra undir pari
samtals. Stacy Lewis setti mikla pressu á Wie
en hún lék lokahringinn á 66 höggum og
lauk hún keppni á pari vallar samtals. Loka-
sprettur Lewis dugði ekki til og Wie gerði
engin mistök á lokakaflanum og tryggði sér
sigurinn.
Stephanie Meadow frá Norður-Írlandi endaði
í þriðja sæti á einu höggi yfir pari samtals en
þetta er fyrsta mótið hjá henni sem atvinnu-
kylfingur. Amy Yang frá Suður-Kóreu sem
var í efsta sæti ásamt Wie fyrir lokahringinn
lék á 74 höggum þegar mest á reyndi.
Brooke Mackenzie Henderson frá Kanada
lék best í keppni áhugamanna og endaði hún
í 10. sæti.
Litla og stóra
unnu risamótin
Fjör og flott
golf á
mótaröðum
kvenna í
Evrópu og í
Bandaríkj-
unum:
Púttstíllinn
er sérstakur
hjá Wie. Lexi
Thompson fylgist
með púttinu.
Hin lávaxna Mo Martin
sigraði á Opna breska á
Royal Birkdale.