Golf á Íslandi - 01.07.2014, Síða 122

Golf á Íslandi - 01.07.2014, Síða 122
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 122 „Ég setti mér markmið fyrir nokkrum árum að verða fyrsta konan til þess að sigra á Arc- tic Open, það tókst í ár. Ég stefndi einnig á að komast í afrekssveit Golfklúbbs Akureyrar og lækka forgjöfina um 5 högg á þessu ári og það er að takast.“ „Ég hef lítið spilað undanfarin tvö ár eftir að ég eignaðist þriðja barnið í ágúst 2012. Ég var með stelpuna nánast á öðrum hand- leggnum síðasta sumar á meðan ég reyndi að spila golf af og til.“ Hafði aldrei snert golfkylfu áður en hún kynntist manninum sínum „Ég hafði aldrei snert golfkylfu og mér fannst þetta hrikalega hallærisleg íþrótt áður en ég kynntist manninum mínum Jason James Wright úti í Englandi. Hann var mjög snöggur að snúa þessari skoðun minni við. Ég sló nokkra bolta í eina viku úti á æfingasvæði á Englandi áður en ég fór út á völl í fyrsta sinn fyrir fimm árum. Frá þeim tíma hefur þessi íþrótt alveg heltekið mig. Jason var fyrst að aðstoða mig og kenna mér þangað til að ég lærði að segja honum að „halda kjafti“ og hann fékk Brian Jensen golfkennara GA til að taka mig að sér. Ég æfði gríðarlega mikið í vetur – í tvo tíma á dag í Golfbæ, inniæfingaaðstöðu GA. Ég er á sveitakeppnisæfingum hjá GA og ég æfi mikið.“ „Ég æfði fótbolta þegar ég var yngri en ég hef ekki mikla reynslu sem keppnisíþróttakona – en keppnis- skapið er til staðar. Samt ekki þannig að ég sé alveg „snar- brjáluð“ úti á velli – ég reiðist aldrei og hlæ bara af vitleysunni sem ég geri og það er betra að mínu mati.“ Brynja á þrjú börn á aldrinum 2-17 ára og hún segir að konur láti oft barneignir og barnauppeldi stöðva sig í því að fara í golfið. Við Jason spiluðum mjög sjaldan saman enda skiptumst við á að leika golf. Félags- legi þátturinn er oftast stærsta hindrunin í golfinu. Fyrsta golfmótið sem ég tók þátt í var Hatta-og pilsamótið hjá GA sem er á léttum nótum og frábært mót. Eftir það var ég „mótasjúk“ og ég reyni að keppa eins mikið og ég get. Það varð til þess að ég er formaður mótanefndar GA,“ segir Brynja og hlær. „Það sem mér fannst erfiðast við að byrja í golfi var að ég kom ein til Íslands á sínum tíma áður en Jason flutti. Ég skráði mig í klúbbinn hér á Akureyri og ég þekkti ekki neinn í golfinu. Mér leið ekki vel í fyrstu að hafa ekki golffélaga til að leika með, mér fannst það erfiðasta skrefið að „fá“ að skrá mig í rástíma með öðrum en ég áttaði mig fljótlega á því að það eru allir tilbúnir að leika með hverjum sem er hérna í GA. Það eru allir jafnir úti á velli.“ Brynja fór niður í 26 í for- gjöf á fyrsta ári sínu í GA og hún er með skýr markmið um framhaldið. „Ég ætla að æfa meira og komast niður í meistara- flokksforgjöf, 4,4. Það er bara þannig. Ég fór með það sem markmið í sumar að spila undir 85 högg, sem ég náði bara rétt áður en þú hringdir mig. Ég ætlaði að vinna Arctic Open, það tókst, ég ætlaði einnig að spila upp fyrir mig í flokki á meistaramótinu, það tókst og þar endaði ég í þriðja sæti. Ég byrjaði sumarið í 18,3 forgjöf og er núna með 13,9 og ég þarf að lækka mig um 0,6 til að ná markmiðunum sem ég setti fyrir þetta sumar.“ Stefnir á að leika á Eimskipsmóta- röðinni á Jaðarsvelli Brynja er nú þegar búinn að setja sér ný markmið og hún stefnir á að leika á Eim- skipsmótaröðinni þegar keppt verður á Jaðarsvelli í fyrsta sinn í rúman áratug í ágúst. „Mig langar að taka þátt, prófa og öðlast meiri keppnisreynslu. Ég er bara þannig gerð að þegar ég fer í eitthvað þá geri ég hlutina af krafti og læt ekkert stöðva mig,“ segir Brynja en hún glímir við ólæknandi sjúkdóm sem nefnist Crohns sem er lang- vinnur bólgusjúkdómur í þörmum. „Sjúk- dómurinn hefur legið að mestu leyti í dvala eftir að ég eignaðist þriðja barnið. Þetta lýsir sér þannig að ég er oft mjög þreytt og orku- laus þegar þessi tímabil standa yfir,“ segir Brynja. Hún ætlar að bæta sig í því að lesa púttlínuna á næstunni og segir það vera sinn helsta veikleika í golfíþróttinni. „Veikleiki minn í golfinu er að lesa pútt- línuna en styrkleiki minn er að ég er högg- löng – allavega miðað við aðrar konur sem ég hef leikið með. Ég er vön því að spila mikið með strákum og það hefur kannski eflt mig í því að slá langt,“ sagði hin kraft- mikla Brynja Herborg Jónsdóttir við Golf á Íslandi. SNERTI GOLFKYLFU Í FYRSTA SINN FYRIR FIMM ÁRUM - Brynja Herborg er fyrsta konan sem sigrar á Arctic Open – stefnir á að komast í 4 í forgjöf Brynja Herborg Jónsdóttir var þrítug tveggja barna móðir þegar hún fór út á golfvöll í fyrsta sinn. Á þeim tíma fannst henni golfíþróttin vera hallæris- leg og hún hafði aldrei snert á golfkylfu fyrr en hún kynntist manninum sínum Jason James Wright úti í Englandi. Nú fimm árum síðar er Brynja með rúmlega 13 í forgjöf og hún náði einu af markmiðum sínum á dögunum með því að verða fyrsta konan sem sigrar á Arctic Open hjá Golfklúbbi Akureyrar þar sem hún býr. Það er óhætt að segja að golfíþróttin hafi heltekið Brynju á þessum fimm árum og hún eignaðist sitt þriðja barn fyrir rúmum tveimur árum og þarf því að skipuleggja tíma sinn vel til að ná settu marki.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Golf á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.