Skák - 06.03.2012, Page 18
40.. .Bxb2 4l.Rg5+ Kh6 42.Dxb2 Dg7
43. Dcl.
40.. .Bxg5 4l.hxg5 Svarta kóngsstaðan
er mjög veik, því að hvítur mun fyrr eða
síðar stilla biskupnum og drottningunni
upp á löngu skálínunni. Þetta og frípeðið
á d-línunni gerir það að verkum að hvítur
stendur til vinnings.
41.. .f4 42.gxf4 Rd4 43.Dc3 Rb5
44. Db3 Rd4 45.Dc3 Rb5
Hér hefði verið hægt að leika Db3 og þá
hefði skákin endað með jafntefli, sem
dugði til þess að verða Islandsmeistari.
Slíkt væri þó gegn gangi skákarinnar.
46.De3! Dg4 47.Bb2 Ddl+ 48.Kg2
Dg4+ 49.Dg3 De6 50.Dh3
Svartur gafst upp. 1-0
Skýringar eftir Héðin Steingrímsson.
Þetta var annað skiptið sern teflt var í
landsliðsflokki á Austurlandi og annar
sigur Héðins sem kann greinifega vel við
sig fyrir austan. Hann hlaut 7,5 vinn-
inga. Verðskuldaóur sigur hjá Héðni sem
tefldi best allra á mótinu, var taplaus og
leiddi mótið aflt frá byrjun.
Með sigrinum tryggir Héóinn sér þátt-
tökurétt í landsliði íslands sem íslands-
meistari og þátttökurétt á EM ein-
staklinga árið 2012.
Bragi varð annar með 6,5 vinninga.
Bragi tefldi mjög vel og átti eitt sitt besta
mót. Henrik varð þriðji með 6 vinninga.
Henrik átti ágætis mót, en vantaði samt
þann herslumun sem þurfti til að vinna.
Félagarnir Stefán og Þröstur enduðu
jafnir í 4.-5. sæti með 5,5 vinninga.
Hvorugur blancfaði sér í toppbaráttuna,
en þeir geta vel við unað og með aðeins
meiri hörku hefðu þeir getað blandað sér
í toppbaráttuna. Aðrir keppendur náðu
sér ekki á flug, en það kemur mót eftir
þetta.
Skáksamband Austurlands sá um mótið
og fær sérstakar þakkir fyrir frábæra
frammistöðu. Þeir Magnús Ingólfsson,
Magnús Valgeirsson, Jón Björnsson,
Kúnar Hilmarsson og Guðmundur Ingvi
Jóhannsson voru sérstaklega hjálpfúsir
vió skákgestina á allan hátt. Hvort sem
var um að ræða akstur, aðstoð við net-
tengingar, matargerð eða aðrar redclingar.
Avallt voru þeir boðnir og búnir. Að
öórum óföstuðum má þó sérstaklega
þakka Guðmundi Ingva fyrir alla hans
aðstoð og þolinmæði sem hann auðsýndi
gestunum.
Aðstæður á Eiðum voru góðar. Húsakynni
þar bera með sér sjarrna liðins tíma.
Andi horfins skólahalds og heimavistar
sveif yfir vötnunum. Samt er ekki lengra
síðan en svo að manni fannst eins og
skólafólkið væri í stuttu leyfi og kæmi
von bráðar aftur - íúllt eftirvæntingar.
Teflt var í hátíóarsal skólans. Þar reyndist
marra í gólfum en austanmenn dóu ekki
ráðalausir og björguðu með því aó flytja
tepparenning ofan af 2. hæð. Vel rúmt var
í skáksalnum - hátt til lofts og nægilega
vítt til veggja til að gera hátíðarsalinn að
fyrirmyndar skáksal. Umhverfi við Eiðar
er einstaklega fagurt. Viður Fljótsdalurinn
blasir við með Húsatjörn næst skólanum,
Eiðavatn og fjærst Lagarfljótið sjálft sem
streymir látlaust út Héraðsflóann. Þá
heilsuðu Dyrfjöll skákmönnum með
festu og reisn eins og þau hafa gert
öllum gestum fjórðungsins frá því land
byggðist. Flestir keppendur nýttu sér
náttúrufegurðina og fóru í gönguferðir
um svæðið.
Eftir lokaumferðina bauð bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs upp á bröns á Hótel
Héraði. Þar voru verðlaun veitt og
viðurkenningar. Björn Ingimarsson bæjar-
stjóri gaf við það tækifæri öllum kepp-
endum bók um Eiðar og verður vafalítið
að ósk sinni um að sjá gestina aftur sem
fyrst fyrir austan. Vel heppnuðu móti á
fornfrægum staó var lokið og skákgestir
hurfu sáttir á vit nýrra ævintýra.
Lokastaðan:
Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinningar
1. SM Héðinn Steingrímsson 2554 y2 1 /2 y2 1 1 1 1 1 7,5
2. AM Bragi Þorfinnsson 2417 /2 y2 1 y2 1 y2 1 y2 1 6,5
3. SM Henrik Danielsen 2533 0 y2 /2 1 1/2 y2 1 1 1 6,0
4. AM Stefán Kristjánsson 2483 /2 0 y2 y2 y2 1 1 /2 1 5,5
5. SM Þröstur Þórhallsson 2387 y2 'á 0 y2 y2 1 y2 1 1 5,5
6. FM Róbert Lagerman 2320 0 0 y2 /2 y2 y2 y2 1 y2 4,0
7. Guðmundur Gíslason 2291 0 y2 /2 0 0 /2 y2 1 0 3,0
8. FM Ingvar Þór Jóhannesson 2338 0 0 0 0 /2 y2 /2 /2 1 3,0
9. AM Guðmundur Kjartansson 2327 0 y2 0 /2 0 0 0 y2 1 2,5
10. Jón Árni Halldórsson 2195 0 0 0 0 0 y2 1 0 0 1,5