Skák


Skák - 06.03.2012, Síða 37

Skák - 06.03.2012, Síða 37
Skákakademía Reykjavíkur Helstu viðburðir ársins 2011 eftir Hrafn Jökulsson Skák út um allt! Skákakademía Reykjavíkur í samstarfi við Skáksamband Islands hefur hrundið af stað átakinu Skák út um allt. Atakinu er ætlað að skákvæða sem flesta almennings- staði í borginni. Er þá sérstaklega litið til sundlauga, kaffihúsa, þjónustumiðstöðva og íþrótta- og dvalarheimila. Bragi Þorfinnsson og Stefán tefla í Laugardalslaug Átakið hófst þegar Stefán Bergsson, fastagestur Sundlaugar Vesturbæjar og framkvæmdastjóri Skákakademíunnar, gerði sér ferð í laugina en í þetta skiptið ekki til potta- og gufulegu. Hraðskák skyldi tefld við Dag Arngrímsson, sundlaugarvörð og alþjóðlegan meistara. Skákin var tefld á bakka laugarinnar og stýrði Dagur hvítu mönnunum. Stefán lenti snemma í mikilli beyglu en tókst um síðir að snúa á Dag sem varð svo mikið um að hann lék sig í mát í einum. Að taflmennsku lokinni fékk sundlaugin taflsettið að gjöf og verður það haft í anddyrinu svo gestir og starfsmenn geti gripið í tafl þegar færi gefst. Nú eru Stefán og Kristján Örn á Kaffivagninum. komin taflsett í Laugardalslaug, og auk þess sundlaugarnar í Grímsey, á Akureyri og Siglufirði. Þá er búið að gefa taflsett á fjölda kaffihúsa, veitingastaða, félags- og íþróttamiðstöðva. Skákþyrstir á faralds- fæti geta líka teflt á BSÍ, Reykjavíkur- flugvelli og meira að segja í Gríms- eyjarferjunni! Hilmir Freyr sigurvegari á MS- jólaskákmótinu Hilmir Freyr Heimisson, 10 ára, sigraði á Jólaskákmóti MS og Skákakademíu Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur sem haldið var 17. desember 2011. Mótið var æsispennandi og bráðskemmtilegt, enda mörg af efnilegustu börnum landsins meðal keppenda. Hilmir Freyr hlaut 7 vinninga í 8 skákum. Vignir Vatnar Stefánsson, 8 ára, og Nansý Davíðsdóttir, 9 ára, hlutu jafnmarga vinn- inga og Hilmir Freyr, en voru örlítið lægri á stigum. Keppendur voru rúmlega 70, á aldrinum 6 til 12 ára. Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestan árangur í hverjum árgangi og þau verðlaun hrepptu Joshua Davíðs- son, Bassirou Mbaye, Vignir Vatnar Stefánsson, Nansý Davíðsdóttir, Hilmir Freyr Heimisson, Jón Otti Sigurjónsson og Kristóferjóel Jóhannesson. Verðlaun fyrir bestan árangur stúlkna hlutu Nansý, Hildur B. Jóhannsdóttir og Svandís Rós Ríkharðsdóttir. Samhliða MS-jólaskákmótinu bauð Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti landsliðsmaður íslands, gestum og áhorfendum í Ráðhúsinu í fjöltefli. Hjörvar Steinn er 18 ára og náði á dögunum tveimur áföngum af þeim þremur sem þarf til að verða stórmeistari í skák. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, flutti setningarávarp og lék fyrsta leikinn. Guðni hvatti börnin til dáða í skákinni, enda væri skáklistin frábærlega til þess fallin til að þjálfa heilann og hefði góð áhrif á námsgetu. Ráðherrann fyrr- verandi, sem er sjálfur snjall skákmaður, gaf börnunum þrjú heilræði: Taka lýsi, drekka mjólk og borða lambakjöt! MS-jóIaskákmótið í Ráðhúsinu heppnaðist í alla staði vel og sýndi vel þá grósku sem er í skáklífi ungu kyn- slóðarinnar. Mjög vegleg verðlaun voru veitt og margir keppendur unnu líka í happdrætti mótsins. Vinningar og verðlaun komu frá Heimilistækjum, Eddu útgáfu, Borgarleikhúsinu, Bjarti, Sögum útgáfu, Steineggi, Sölku, Senu, 12 tónum, Nexus, Pennanum, Oðinsauga, ITR, Hús- dýragarðinum. Friðrik skákar ellinni og mátar æskuna Fjöltefli Friðriks Ólafssonar í Hörpu við meistara framtíðarinnar heppnaðist frábærlega í desember 2011. Friórik sýndi Friðrik áritar bók sína fyrir Veroniku Steinunni leiftrandi taflmennsku í mörgum skákum, en krakkarnir sýndu líka hvað í þeim býr. Friórik vann 8 skákir, gerði 4 jafntefli og tapaði einni, fyrir Degi Ragnarssyni, 14 ára nemanda í Rimaskóla. Urslitin urðu því 10-3 fyrir Friórik, en sigurvegari dagsins var skáklíf á íslandi. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, sem flutti setningarávarpið, sagði að þetta væri söguleg stund. Senn væru liðin 60 ár síðan Friðrik varð íslands- meistari í fyrsta sinn og Friðrik hefði lagt grunn að því að ísland varð stórveldi í skákheiminum. Össur fagnaði því líka sér- staklega að skáklistin væri búin að nema land í Hörpu: „Hér á skákin heima, í húsi fólksins." Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskólans, flutti ávarp og hvatti lærisveina sína til dáða. Hann benti á að Friðrik hefði um 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.