Skák - 06.03.2012, Side 39
HM,POR*TTl
HMKOU ÍSUNDS
"in
c liXjj
Líf og fjör á menningarnótt
8. til 9. ágúst. Þá tóku krakkarnir í
Skákakademíu Reykjavíkur til sinna ráða,
þegar fréttir bárust af skelfilegri lrungurs-
Elín Nhung, sterkasti skákmaður Engjaskóla
neyð í Sómalíu. Alls tóku rúmlega 20
ki'akkar þátt í maraþoninu og hundruð
gesta lögðu leið sína í Ráðhúsið til að
spreyta sig gegn krökkunum og leggja
góðu máli lið.
Krakkarnir söfnuðu rétt tæpri milljón,
en maraþonið hafði líka þau áhrif að
símasöfnun Rauða krossins tók mikinn
kipp og er álitið að það hah skilað
milljón til viðbótar.
„Það skiptir engu máli hvort þú vinnur
eða tapar. Við erum bara að reyna að
hjálpa börnum sem eru að deyja úr
hungri. Margt smátt gerir eitt stórt,“ sagði
Donika Kolica, talsmaður krakkanna í
söfnuninni, í viðtali við DV.
„Upphæðin sem hefur safnast, bæði hér
í Ráðhúsinu og með símhringingum
meðan á maraþoninu stóð, dugar til
að kaupa bætiefnaríkt hnetusmjör til
að hjúkra 1.300 alvarlega vannærðum
börnum til heilbrigðis,“ sagði Þórir Guð-
mundsson, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða
krossins. „Krakkarnir geta því sannarlega
verió stoltir af framlagi sínu.“
Það var Skákakademía Reykjavíkur
og Skáksamband Islands sem stóðu
„Við erum ein fjölskylda"
fyrir maraþonskákhátíðinni í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Þar tefldu mörg efnilegustu
börn og unglingar landsins við gesti og
gangandi. Mótherjar krakkanna borguðu
upphæð að eigin vali, sem rann beint í
söfnun Rauða kross Islands vegna hinnar
hræðilegu hungursneyðar í Sómalíu.
Alísa, Donika og Nansý
Kjörorð skákhreyfingarinnar er ,yið erum
ein fjölskylda11 og með skákmaraþoninu
í Ráðhúsinu vildu ungir liðsmenn
skákgyðjunnar á Islandi sýna börnum í
Sómalíu stuðning í verki.
39