Skák

Ataaseq assigiiaat ilaat

Skák - 06.03.2012, Qupperneq 50

Skák - 06.03.2012, Qupperneq 50
Nýtum vísdóm reynslunnar! kákvakningin hér á landi undanfarin ár er gleðiefni. Þar kemur til breytt gildismat almennings sem sækir í uppbyggilegri og ódýrari dægradvöl en fyrir hrun, ásamt ötulu úrbreiðslustarh skákhreyfingarinnar. Hvetjendur átta sig á kostum þess að æskan iðki þjóðaríþrótt hugans. Ávinn- ingurinn er meðal annars aukin geta tii einbeitingar og efling skapandi hugsunar. Jafnframt er skákin kjörinn vetn'angur til að læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, ásamt því að temja sér yfirvegun í tvísýnum stöóum á taflborði lífsins. Að virkja hina óvirku Stundum vill gleymast hve mikilvægt það er að hvetja einnig fulltíða skákunn- endur til iðkunar. Markmiðið er ekki eingöngu að örva heilastarfsemi og fjölga ánægjustundum, heldur einnig að varð- veita íslenska skákarfleifð þannig að af strengist sterk bönd við yngri iðkendur og kynslóðirnar miðli hvor annarri. Hjá skákfélaginu Goóanum hefur veriö lögð talsverð vinna í að laða óvirka skákunnendur til þátttöku í kappskák á ný. Þar má nefna kempur á boró við Ás- geir Ásbjörnsson og Þröst Árnason, sem höfðu lengi verið frá skákiðkun, en prýða nú skáksveit Goðans og auðga flóru íslenskrar skákmenningar. Svipaða sögu má segja af köppunum Einari Hjaltajens- syni, Birni Þorsteinssyni og fleirum sem eru orðnir mun virkari en áður. Miklu skiptir að fá sem flestar skákkonur að borðinu á ný og því er það fagnaðarefni að sjá skákdrottninguna Guólaugu Þor- steinsdóttur úr TG á keppendalista Opna Reykjavíkurmótsins í ár. Fjölbreytt framboð skákviðburða skiptir máli í þessu sambandi. Sem dæmi má taka Gestamót Goðans og Öðlingamót TR sem teygja margan snillinginn að taflborðinu. Þessi mót hafa þann kost að aðeins er teflt einu sinni í viku, þannig að þeim sem njörvaðir eru niður við dagleg störf eða vilja einfaldlega undirbúa sig af kostgæfni veitist tóm til að taka þátt. Spurning um viðmið Æskan er framtíð Islands en gleymum því ekki að hinir eldri eru það líka. Þeir sem hvetja miðaldra fólk og eldra til virkrar þátttöku í kappskák á ný, hnjóta oft um ósýnilega þröskulda. Hér er átt við óframfærni og vantrú á eigin getu sem vill hreiöra um sig í undirvitund þessa góóa fólks. Það telur sér trú um að það eigi ekki lengur erindi í keppni við yngri skákmenn. Undirrótin er almennir for- dómar gagnvart eldra fólki í samfélaginu og mikil vanþekking á hæfni þess - þar á meðal sú tilhneiging að líta á öldrun sem samfélagslegt vandamál fremur en nátt- úrulegt ferli sem tengist ávinningi engu síður en missi. Æskudýrkun og fordómar gagnvart eldra fólki grundvallast á viðhorfsvanda sem má að hluta rekja til eldri samfélags- gerðar þegar vöðvaafl jafngilti vinnuafli. Séð með augum nútímamannsins er um að ræða ofmat á líkamlegum breytingum sem hefjast þegar innan við þrítugt. Að sönnu dregur að meðaltali úr vöðvaafli og líkamlegri snerpu með aldrinum en hvorugt ætti til dæmis að hafa afgerandi áhrif á spurn eftir vinnuafli í þekkingar- samfélagi 21. aldar. Þar hlýtur afl hugans að vera svo miklu mikilvægara, auk þess sem þeim fer síféllt fjölgandi sem taka ábyrgð á líkamlegu atgervi sínu með markvissri líkamsrækt og viðhalda þannig vöðvaafli fram eftir aldri eða auka jafnvel. Vart þarf heldur að fjölyrða hve íjar- stæðukennt það er að nota vöóvastyrk sem mælikvarða á getu til skákiðkunar. Við þekkjum ýrnis dæmi frá Forn- Grikkjum, tíð Konfiásíusar í Kína, Róma- veldinu og frá ættbálkum frumbyggja Norður-Ameríku um að eldra fólk var haft í heiðri og naut virðingar sökum aldurs, en því fer þó fjarri að alhæfa megi um slíkt. Orðið öldungur var gjarnan virðingarheiti og tíðum var litið á ungt fólk sem óábyrgt, draumlynt og grunn- færið. Aldur og reynsla voru tengd visku og vísdómi - og ekki að ástæðulausu. Sem dæmi um skákmann sem hefur kunnaó að nýta sér vísdóm reynslunnar á okkar tímum má nefna sjálfan Bobby Fischer. Hann leitaði í smiðju til eldri meistara á borð við Morphy, Steinitz, Aljekhine og Capablanca og hafði erindi sem erfiði. Hinn þroskaði heili Eitt af einkennum hins unga heila er hve auðvelt hann á með að tileinka sér nýjar upplýsingar og hve snöggur hann er að því. Stundum eru þetta reyndar merkingarvana staðreyndir, alls konar rusl sem hann tekur upp í bland við bitastæða þekkingu. Þaö tekur hann hins vegar mun lengri tíma að finna notagildi upplýsinganna - að stíga skrefið frá þekkingu til vitneskju ef við lítum á vitneskju sem þekkingu með háu notagildi. Mörg höfum við orðið vitni að því hve undraskjótt ungir skákiðkendur geta lært flóknar leikjaraðir utan að. Þar með er ekki sagt að þeir öðlist innsýn í dýpri lögmál stöðunnar á taflborðinu eða megni að bera hana sjálfkrafa saman við lykilstöður af svipuðum toga, sér til gagns og eflingar. Þar er eldri heilinn fremri hinum yngri. En er heili hinna eldri ekki seinni í svifum við upptöku nýrra upplýsinga á borð vió nýjar leikjaraðir? Jú, auðvitað könnumst við öll við það úr daglega lífinu - en áttum okkur kannski ekki á því að oft er orsökin sú að með aldursháðum þroska verður heilinn almennt mun færari um að greina merkingu og samhengi. Þó að hinn fullorðni heili taki sér lengri tíma til að nema nýjar upplýsingar, er hann öflugri við að greina kjarnann frá hisminu - átta sig á notagildi nýrrar þekkingar, meóal annars í skák. Þess vegna hættir fólki til að upplifa þetta mynstur á þann veg að heilinn hafi sjóvgast mjög með aldrinum þegar staðreyndin er sú að hann er einfaldlega að glíma við flóknari úrvinnslu. Vísindamenn hafa gert sér grein íýrir nauðsyn þess að mæla breitt getusvið og gefa þátttakenclum sanngjarnan úr- Jón Þorvaldsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Skák

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.