Skák - 06.03.2012, Side 52
Evrópumót landsliða 2011
Porto Carras í Grikklandi
3.-11. nóvember 2011
A nnað hvert ár fer fram Evrópumót
L\ landsliða í skák. Mótin eru háð
jL JLþau ár þegar Ólympíuskákmót eru
ekki á döhnni og skera sig úr að ýmsu
leyti. Þannig má segja að Evrópumótin
séu þéttari og sterkari. Þar er lítið um
veik lið, en mörg minni skáksambanda
Evrópulandanna senda ekki lið á mótið,
t.d. láta Færeyingar sér nægja að senda
lið á Ólympíuskákmótið.
íslenska liðið var það 32. sterkasta af
38 liðum samkvæmt skákstigum og það
stigalægsta af norrænu liðunum. Því var
fyrirfram ljóst að róðurinn gæti reynst
þungur, ekki síst í ljósi aðdragandans
þegar okkar bestu menn heltust úr
lestinni hver á fætur öðrum.
Maður kemur í manns stað
Helgi Ólafsson stórmeistari hóf lands-
liðsæfingar með urn tug skákmanna
fljótlega eftir áramótin 2010-11. Eiðsval
var svo tilkynnt í byrjun september: 1.
Hannes Hlífar Stefánsson, 2. Héðinn
Steingrímsson, 3- Henrik Danielsen, 4.
Hjörvar Steinn Grétarsson og varamaður
var Bragi Þorfinnsson.
Á ýmsu átti svo eftir að ganga.
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson
dró sig úr liðinu af persónulegum
ástæðum nokkrum vikum fyrir mót.
Stefán Kristjánsson, þá nýorðinn
stórmeistari, var valinn í liðið í stað
Hannesar. Héðinn Steingrímsson dró
sig einnig úr liðinu vegna veikinda með
rúmlega viku íýrirvara.
Að beiðni landsliðsnefndar og stjórnar
SI tók liðsstjórinn, Helgi Ólafsson, sæti
í sjálfu liðinu sem varamaður við þessi
forföll. Björn Þorfinnsson, bróðir Braga,
kom svo inn í lióió aðeins tveimur
dögum fyrir brottför þegar ljóst var að
Stefán kæmist ekki með vegna bak-
meiðsla.
Liðið skipuðu því: 1. Henrik Danielsen,
2. Hjörvar Steinn Grétarsson, 3. Bragi
Þorfinnsson, 4. Björn Þorfinnsson og
varamaður og liósstjóri var Helgi Ólafs-
son.
Sjálfur fór ég með sem fararstjóri og
skákstjóri. Auk þess sótti ég aðalfund
Evrópska skáksambandsins og sinnti
Gunnar Björnsson
fréttaflutningi frá mótinu með frétta- og
pistlaskrifum á Skák.is.
Staðurinn og fólkið
Mótið fór ffam í Porto Carras í Grikk-
landi, sem er 120 km frá næststærstu
borg landsins, Þessalóníku. Staðurinn er
einn þekktasti sumarfrísstaóur Grikk-
lands, lítill en afar fallegur. Þarna eru tvö
fimm stjörnu hótel og ráðstefnusalur þar
sem teflt var. Auk þess var þarna að finna
ágætan 18 holu golfvöll, sem við Helgi
prófuðum.
Það var nokkuð sérstakt að lesa fréttirnar
á íslenskum netmiðlum þar sem Grikk-
land var aðalumfjöllunarefniö á meðan
á mótinu stóð. Þarna var mikil pólitísk
kreppa og Grikkjunum gekk erfiðlega
að koma sér sarnan unt næsta forsætis-
ráðherraefni. Heimamenn, sem unnu
aó mótinu, gerðu óspart grín að þessu
og aðalbrandarinn hjá þeim eitt kvöldið
var að allir væru með kveikt á símanum
og biðu eftir að hringt væri í þá og
þeir beðnir urn aö taka að sér forsætis-
ráðherraembættió!
íslenska liðið við skákrannsóknir hins dýnamíska jafnvægis
Grikkirnir höfðu mikinn áhuga á krepp-
unni á íslandi og var ég mikið spurður
um Island og hvernig okkur hefði
gengið að vinna okkur út úr krepp-
unni og hvaða afleiðingar hún hefði
haft fyrir landann. Grikki nokkur lét svo
ummælt aó þarna á hótelinu upplifðum
við gerviveröld í vernduðu umhverfi.
Hið raunverulega ástand í landinu væri
grafalvarlegt.
Mótshaldið allt var í mjög föstum
skorðum. Grikkir eru vanir mótshaldarar
og fagmennskan skein alls staðar í
gegn. Salurinn var rnjög vel uppsettur
og öll skipulagsmál í góðu lagi. Eiginlega
skólabókardæmi um hvernig halda á slíkt
mót. Það var helst að maður saknaði þess
að allar skákirnar væru sýndar beint á