Skák


Skák - 06.03.2012, Síða 61

Skák - 06.03.2012, Síða 61
Hxd5 45.Hc7 Hd4 46.Hxa7 Hxb4 47.Kg2 Jafntefli. Það var svekkjandi að vinna ekki þessa skák en baráttan var engu að síður skemmtileg og rnargar athyglisverðar miðtaflsstöður komu upp. Hvítt: Björn Þorfinnsson (2402) Svart: Zvonko Stanojoski (2470) 18. Evrópukeppni landsliða í Porto Carras á Grikklandi Undirritaður kom inn í liðið með litlum fyrirvara. Á sunnudegi fékk ég hringingu frá Helga Olafssyni og á þriðjudags- morgni var förinni heitið til Grikklands. Ég var hins vegar í góðri æfingu og hafði sinnt skákrannsóknum ágætlega og íyrirvarinn skýrir því ekki slakan árangur minn. Eftir baráttujafntefli gegn sterkum andstæðingum í fyrstu tveimur umferðunum tapaði ég fyrir mun stigalægri andstæðingi, Hubert Mussong frá kúxemborg, í 3. umferð. Sennilega hafði það einhver áhrif að kvöldið fyrir skákina var mér tjáð af öðrum liðs- mönnum Lúxemborgar að Hubert væri kallaóur „The Losing Machine11 enda væri árangur hans með landsliðinu í einu orði sagt slakur. Ég tefldi skákina hins vegar verr en nokkur tapvél og varð að gefast upp áður en 30 leikjum var náð. Eftir það var erfitt að snúa mótinu mér í hag, persónulega. Hins vegar snýst landsliðsferð í skák um margt annað en taflmennskuna. Það þarf aó hlúa að liðsandanum og aðstoða félaga í nauð og þar lagði ég mig allan fram og skilaði von- andi einhverju til liðsins þegar upp var staðið. Helgi Ólafsson stóð sig fantavel í hlutverki liðstjóra auk þess sem tafl- mennska hans var frábær og lærdómsrík fyrir okkur hina. Hápunkturinn var sigur- skákin gegn Gagunashvili þar sem Helgi var með mun betra tafl en náði að knýja fram sigur með því að gera ekki neitt nema að manúvera fram og tilbaka í 20 leiki (!!) en leiddist svo þófið og fórnaói skiptamun og landaði vinningnum örugg- lega. Sjálfur reyni ég alltaf að þvinga fram úrslit en hef ekki tileinkað mér þá list sem Helgi sýndi svo fagmannlega gegn Georgíumanninum. Það er draumur minn að vinna fljótlega skák með því aó gera ekki neitt! Að endingu var vera Gunnars Björnssonar á mótsstað afar mikilvæg enda afar skemmtilegur ferða- félagi þar á ferð auk þess sem hann var ætíð lióinu innan handar. En þá að sjálfri skákinni. Ég og stórmeistarinn Zvonko Stanojoski eigum okkur smá forsögu. Fyrir utan að hafa deilt afar morknum lestarvagni til Hastings fyrir rúmlega áratug (sem Zvonko man ekkert eftir) þá mætt- umst við á EM landsliða í Novi Sad árið 2009. Þar hafði ég sigur nteð hvítu í Benkö-afbrigóinu en þann gambít teflir Makedóninn „alltaf“ gegn d4. Það var því alveg ljóst að Stanojoski ætlaói að hefna sín í þessari skák. I.d4 d5 Strax óvæntur leikur - enginn Benkö-gambítur í þetta skiptið. 2x4 e6 3.g3 c6 4.Bg2 Rf6 5.Rf3 Rbd7 6.0-0 Be7 7.b3 b6 8.Bb2 Ba6 Eftir nokkuð eðlilega leiki í Catalan-byrjuninni er Stanojoski farinn að feta af troðnum slóðum. Sennilega af því að hann þekkti byrjunina ilia. 18.Dd2 Bb7 19-Hdl Be4 Núna rann upp fyrir mér hvað var að fara að gerast en ég á ekkert betra. 20.Hd6 Bd5 21.Df4 21.. .e5! 22.Rxe5 Dxd6 23.cxd5 Einnig kom til greina að drepa meó biskupi á d5. 23.. .Rd7?! 23...Hfe8 var betra en eftir 24.Rc4 Dxf4 25.gxf4 er hvítur svo sannarlega með bætur. 9-Rbd2 Áætlun hvíts er einföld - fram- rásin e4. 9...HC8 lO.Hel c5 11x4! 11.. .dxe4 Ekki gekk að leika ll...dxc4! út af hinu sterka svari 12x15 og svartur er kominn í vandræði. 12.Rxe4 Rxe4 13.Hxe4 0-0 I4.dxc5 bxc5 l4...Bxc5 hefði verió svarað með hinum smekklega leik 15.b4 og hvítur er með mun betra tafl. 15.He3 Hugmyndin er að þrefalda á d-línunni en í kjölfarið held ég mig of fast við þá áætlun, sem byggist á því að ég sá ekki 21. leiksvarts. 15.. .Bf6 l6.Bxf6 Rxf6 17.Hd3 Dc7 24.Rxd7 í nokkrar sekúndur datt mér í hug að leika 24.Rc6?? sem hefði verið frekar vandræðalegt eftir 24...Hxc6! 24.. .Dxd7 25.d6 Hcd8 26.Dg5?! 26.Dc4 hefði verið nákvæmara og þá hefðu vinningsmöguleikarnir verið hjá hvítum. 26.. T5 27.Dcl Hf6 28.Dc4+ Kh8 29.Dxc5 Hxd6 30.Hxd6 Dxd6 31.Dxa7 Ddl+ 32.Bfl Nú er staðan í dýnamísku jafnvægi. Svartur getur nánast aldrei sett verulega pressu á biskupinn þ\ í þá þráskákar hvítur í flestum tilvikum. 32..T4 33.Dc7 f3 34.Dc3 h5 35.a4 He8 36.Dc5 g6 37.a5 Hel 38.DÍ8+ Kh7 39-DÍ7+ V2-V2 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.