Skák - 06.03.2012, Qupperneq 84
Þór Valtýsson og Ólafur Kristjánsson eiga
hér líka langan feril aö baki. Ég ætla ekki
að hafa þessa upptalningu lengri og tek
áhættuna á því að gleyma einhverjum
sem ég ætti að muna eftir.
Nýliðarnir láta til sín taka:
Mátar glímdu við Helli í fyrstu viðureign sinni í 1. deild og
tókst óvænt að halda jöfnu. Hér má sjá þá Gawain Jones
og Nikolaj Mikkelsen t.v. Hjörvar Steinn Hellismaður situr
gegnt Mikkelsen.
Mótið í ár
A 38. ári mótsins er öðruvísi um að
litast í 1. deildinni en áður var. Horfinn
er Hrókurinn. Horfnar eru b-sveitir
Reykjavíkurrisanna. Komin eru til
skjalanna ný félög og endurborin frá
því sem var í mínu ungdæmi. Helstu
útgerðarbæir landsins eru komnir til
skjalanna og aflaklær þeirra magnaðar. Af
upphaflegum þátttakendum eru öldung-
arnir sem hófu keppnina þeir einu sem
halda sér í efstu deild. Tvær nýliðasveitir
koma til sögunnar nú. Bolvíkingar
mættir með b-sveit og munar ekki um
að draga stórmeistara og fleiri titilhafa
á flot með henni því þeir eru með svo
mikinn mannskap. Nýir eru Mátar sem
vísast geta fallið undir skilgreininguna
„spútniklið“ sem hefur farið stystu
mögulega leið upp deildastigann frá því
félagið var stofnað fýrir u.þ.b. fjórurn
árum af hópi brottfluttra Akureyringa,
uppeldissona Skákfélagsins gamla.
Eftir að Taflfélag Bolungarvíkur hóf að
sanka að sér flestum innlendum titil-
höfum og bætti um betur með liðsauka
að utan, hefur a-sveit þeirra verið nánast
ósigrandi. Það segir sína sögu hvað þeir
hafa teflt fram mörgum stórmeisturum:
Fyrsta ár Bolvíkinganna í 1. deild,
2008-2009, var sveit þeirra skipuð fimm
stórmeisturum. Arið eftir voru þeir sex og
í fýrra notaði félagið átta (8!) stórmeistara
og jafnmarga í ár.
Eftir haustumferðirnar höfðu Bolarnir
tekið afgerandi forystu, en í hnapp á
eftir þeim komu Taflfélag Vestmanna-
eyja og félögin tvö sem uppnefnd hafa
verið Reykjavíkurrisamir. Bolvíkingarnir
sigldu fleyi sínu svo örugglega í höfn í
síðari hlutanum og höfðu reyndar tryggt
sér sigurinn þegar einni umferð var
ólokið. Barátta hinna þriggja sveitanna
um verðlaunasæti var hinsvegar
æsispennandi og þar náðu Hellismenn
siffrinu nteð 8-0 sigri á Akureyringum í
lokaumferðinni.
Baráttan í neðri helmingi deildarinnar
var enn meira spennandi. Staða Fjölnis
var reyndar nánast vonlaus eftir fyrri
hlutann. B-sveit Bolvíkinga, sem kom
upp úr 2. deild í fyrra, virtist hafa komið
ár sinni vel fyrir borð, en baráttan um að
forðast annað fallsætið stóð einkum milli
systurfélaganna, SA og Máta. Báðar
sveitir höfðu náð nokkrum góðum
úrslitum í lýrri hlutanum og var ljóst að
hart yrði barist. I 5. umferð unnu Mátar
öruggan sigur á b-sveit TB og þegar þeir
síðarnefndu töpuóu svo stórt fýrir TR í
þeirri 6. var ljóst að fiskimennirnir að
vestan voru komnir í bullandi fallbaráttu.
Við Akureyringar komum okkur í góóa
stöðu fyrir lokaumferðina með stórsigri á
Fjölni. Við höfðum 4,5 vinninga forskot
á Máta og tvo á Bolvíkinga (b) þegar sest
var að tafli í síðustu umferð, en áttum í
höggi við geysisterka sveit Hellis, nteóan
Mátar tefldu við fallið lið Fjölnis og
Bolar við Vestmannaeyinga. Þegar leið
á viðureignirnar dansaði falldraugurinn
milli þessara sveita og settist á axlir okkar
á víxl. Við SA-menn, sem stóðum best að
vígi, þurftum tæplega nema eitt eða tvö
jafntefli til að tryggja stöðu okkar, en þau
létu á sér standa og að lokum töpuðum
við öllum skákununt. Keppinautum
okkar gekk hinsvegar svo brösuglega
að undir lokin var ljóst að við myndum
halda sætinu á kostnað annars þeirra. I
lokin skiptu nokkrar skákir um eigendur
eins og gengur og þegar öllurn öðrum
skákum var lokið valt allt á úrslitunum
í viðureign Arnars Þorsteinssonar Máta
og Erlings Þorsteinssonar Fjölnis-
manns. Með sigri Arnars gætu Mátar náð
Bolvíkingum að vinningum og stigum
og haft þá undir vegna sigurs í innbyrðis
viðureign. En taflið einfaldaðist um of
Erlingur hélt jöfnu og Mátar máttu kveðja
efstu deild eftir árs veru, hálfum vinningi
á eftir SA og TB (b). Svona er lífið.
Af keppninni í neöri deildum verður fátt
sagt hér en vísað í mótstöflur. Þróunin
sýnir svo ekki verður um villst að sterkum
klúbbum fer fjölgandi og fleiri félög en
áður hafa getu og vilja til að komast í hóp
hinna bestu og halda sér þar. Nú heyrast
a.m.k. ekki lengur raddir urn að þaó sé
Ijóður á þessu móti að örfá félög séu
ofursterk og öll hin of veikburða til að
veita þeim alvöru keppni. Tvö félög unnu
aðra deildina örugglega og rnunu mæta
til leiks að ári. Þar eru Goóar og Víkingar
á ferð og synd að segja að okkar norræni
menningararfur minni ekki á sig í nafn-
giftum á sterkum og metnaðarfullum
skákfélögum. Bæði munu eiga fullt erindi
í hóp hinna bestu og óhætt að segja að
skákunnendur geti strax byrjað að hlakka
til keppninnar að ári.
Ungur nemur, gamall temur - eða þannig. Líklega er um 60 ára aldursmunur á þessum keppinautum í viðureign b-sveitar
Goðans og unglingasveitar SA í 4. deild. Björn Þorsteinsson fyrrverandi íslandsmeistari (t.h.) er einn af nestorum mótsins
og hefur verið með frá upphafi. Jón Kristinn Þorgeirsson (t.v.) er hinsvegar bara rétt að byrja. í skák þeirra félaga varð sá
yngri hlutskarpari og vann óvæntan sigur.
Allar myndirnar eru fengnar úr myndaalbúmi mótsins á heimasíðu Skáksambandsins.