Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Blaðsíða 16

Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Blaðsíða 16
Kvæðið um Bikarinn Gakkt’ í bæinn gestur minn, gef ég þér á diskinn súpu og flesk í svanginn þinn, síSan Moldárfiskinn. Fæðið hér er fyrirtak, fylgir með því skjól og þak. Þig sem mann við metum hér, margan heiður sýnum þér. Aðeins átta krónur. Engin vottorð vil ég þó, vegtyllurnar skaða. Að þú sért með nef er nóg, nú skalt’ í þig raða. Vinalegur vera skalt, varast spott og gaspur allt, bragðað’ ost við bjórinn þinn, boðinn ertu velkominn. Einnig átta krónur. Einhverntíma eygjum við út úr veðri hörðu. Heimilis þá hljótum frið hér á mannajörðu. Allir menn fá uppreisn þá, enginn verður settur hjá. Hér mun finnast húsaskjól handa þeim sem áður kól. Eins með átta krónurl

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.