Freyja - 01.12.1903, Qupperneq 1
VI. BINDI.
DESEMPER 1903.
NR. .5
® 1111K “
i.
em uppdregiö skákborð, svo skipuleg var
in skógrudda, þéttbyggöa sveit.
Hvert búandans óðal viö alfaraveg
í inngirtum, ferhyrndum reit.
Hvert míluhorn, gatnamót, bugalaus braut,—
ei brattstígur áss eöa gils.—
Til hádegis-leytis var helft þeirra lögð,
en hin lá til miðaftans bils.
Af vestrœna frelsinu sveitin bar svip,
sem segði það blátt fram og hreint:
Við götuna heimilum, gestur minn, þér,—
en gakktu þó hiklaust og beint!
Því stígir þú fet inn á góðbúans garð
þú geldur þess—við erum enn
á götur og stjórnfrelsi gjafmildust þjóð,
en, guð’ sé lof, tollheimtumenn.
—En hlöðurnar dumbrauðu hillti’ yfir jörð,
sem hraunborgir, langt út um sveit.
Og vorlognið blákembdi víðlendið allt,
og vorsólin stafaði heit.
Á húsglugga leiftraði’ í lundi, sem stóð
í lyfting við rennislétt frón,
sem bænum var afdrep gegn illviðra byl
og almennings njósnandi sjón.