Freyja - 01.12.1903, Page 2

Freyja - 01.12.1903, Page 2
«4 FREYJA VI. 5. En væri frá gættinni garöhliði lyft á götunni húsabæ að, þá opnaðist garðtrjánna riddara-röð við rakleið í glóskúfað hlað, þar klifruðu blómvefjur upsunum að upp anddyrið, torfœran spöl, og þrúgnanna viðjur mót vermi-átt dags, sig vöfðu að gluggum og svöl. Og svo hafði angan frá ilmandi runn á aldintré glóandi bent, þar blómhvítan fjölskreytti grœnlaufga grein, sem glómjöll úr sólskini fennt. En plómu-tréð lang fegurst, liljunnar blæ sem lit inn í rósanna brá, sem frelsið og sakleysið sáttmála gert og sett hefði blöðin þess á. En spjöll voru mannaverks mörkin á þeim, þess mót sást um trjástofn og blöð. Sjálf náttúran hressir og hrífur mann dýpst þó hirði’ ekki um skorðaða röð. Að húsbaki stóð þó enn laufskógar-leyf frá landnámstíð, varin og studd. En kynslóðir tvær.höfðu gengið um garð í gröf, áður mörkin varð rudd. Þar grásilfrað bæki, frá riðaðri rót sig reisti með blaðahvolf vítt, og mösur í öskugrám, uppleyptum bol, og útskorið laufadjásn nýtt; og dimmleggjuð eiki-tré dökkgrænu typt og djúprætt, með áratal hœst.— Mun órœktin langlífis uppeldis-jörð ef aldrei með grœðslu það fœst? En svo tóku kornekrur vorgrónar við um vallbungu, strikaða plóg,

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.