Freyja - 01.12.1903, Blaðsíða 5

Freyja - 01.12.1903, Blaðsíða 5
FREYJA 8-? 18 bezta bvaö íallvaltast, forlögin þau, a5 fegurðin skammlífust sé. En það sem er ágœtast þroskast og fjrst, og þarf ekki áranna með. Ég fœst ei um rangindi, aö ræzt hafi á þér sú reglan—sem vel getur skeð. Og sitjirðu’ í dýflissu—dæmd henni var oft drengkmd eins hrein eins og þín. Allt mannlíf er flóknasta vegamóts-völ og vandhitt og langt út úr sýn. Þó afgömul þjóðheimska telji upp tvö sem til sé og völ leiki á, >ef reyndist ei lýgi sú leiðsaga forn oss létt kosið víst myndi þá. Og eins er mér sama, þó sjálfsmennsku þrœlS þú sért, eins og fjöldinn og ég, þín snilld breytir hreysinu í hallir, og skort í heimkynni alls-nægjuleg, því kóngborin sál gerir kymann að sal, að kastala garöshorniö svalt. Þó hafin sé dyrgjan á drottningar-stól tók dáminn af kotinu allt. Þó frú sértu göfug og skrýðist í skart, sá skrúði þér maklega fer, þú prýðir svo gullið, og demanta djásn er dýrmœtt í hárinu á þér ------. I gröf þína, ,,Curly“ mín, kveð eg um jól, í kot þitt, í höll þína inn. I þrjátíu ár hef ég ekki þér gleymt og enn er ég riddarinn þinn. St. G. StephanssoN. ©\(í§)(íf)\j)

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.