Freyja - 01.12.1903, Qupperneq 16

Freyja - 01.12.1903, Qupperneq 16
98 FREYJA VI. 5- andi skottinu, en engum sagði hann af ferðum sínum. ,,Hví er villihundurinn hér?“ sagði maðurinn, þegar hann vaknaði ogsá hundinn. ,,Hann er ekki lengur villtur, heldur er hann vinur Qkkar hinn fyrsti, úr vilhskógunum, og það verður hann œ og æfinlega. Tak hann með þér á veiðar, “ sagði konan. *• * * Nœsta dag skar konan hey á flœðienginu og þurkaði það við eldinn, þar til það ilmaði, eins og ný slegið, vel þurkað og kyngott hey œfinlega gjörir. Þetta hey lét hún svo við utanverðan hellis- munnan, að því búnu settist hún niður, fléttaði reipi úr hrosshúð ogtók að syngja. Það var í annað skifti, að heimurinn heyrði slík- an töfrasöng. Uti í frumskógununum villtu, vissu villidýrin ekki hvað orðið hefði af hundinum og undruðust yfir hvarfi hans. Þá stappaði villihesturinn fótunum og sagði: ,,Ég skal fara og vita hvað orðið hefir af villihundinum. Kom þú með mér, köttur. “ ,,Nei, nei, ekki mikið. Ég fer minna ferða, og allir staðir eru mér jafn kœrir, “ sagði kötturinn. En þrátt fyrir það fór hann f humáttina á eftir hestinum og faldi sig sem fyr. Þegar konan heyrði jódyninn brosti hún og sagði: ,,Hér kem- ur þá annað villidýr frumskóganna villtu. Hvað vilt þú?“ Villihesturinn svaraði ogsagði: ,,Ó, þú óvina mín, og kona óvinar míns. Hvar er villihundurinn?“ Konan hló og sagði: ,,Ó, þú villidýr frumskóganna villtu, þú komst ekki hingað vegna hundsins, heldur til að forvitnast um þetta ilmandi gras. “ Villihesturinn stappaði fótunum og sagði: ,,Það er satt, gef þú mér grasið að borða. “ „Villidýr frumskóganna villtu, beygðu þitt villta höfuð undir það sem ég gef þér, þá skal ég einnig gefa þér lyst þína af þessu ilmandi heyi þrisvar á dag, “ sagði konan. ,,Þetta er vitur kona, þó ekki sé hún eins vitur og ég, “ sagði kötturinn. Villihesturinn beygði niður höfuð sitt, og konan smeygði beizli á hann. Þá andaði hesturinn á fœtur hennar og sagði: ,,Ó, þú húsmóðir mín og kona herra míns. Fyrir þetta ilmandi gras skal ég gjörast þjónn þinn. “ ,,Einmitt það, þetta er heimskur hestur, “ sagði kötturinn og fór nú sifina ferða, veifandi skottinu. Þegar maðurinn og hundurinn komu heim af veiðum, sagði

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.