Freyja - 01.12.1903, Page 20

Freyja - 01.12.1903, Page 20
102 FREYJA VI. 5- móöír óvínar míns?“ sagöi kötturinn. ,,Neí, ‘‘ sagSí konan, stökk upp á fótstól, sem þar var, kastaöi heröablaöinu og vaföi í snatri' upp hár sitt, svo músin ekki skyldi hlaupa upp eftir því. ,,Skot ekki sakar mig þó ég eti músina, “ sagöi kötturinn. ,,Et hana þá fljótt og ég skal vera þér þákklát œ og æfinlega, “ sagði konan og fléttaði hár sitt í ákafa. Þá tók kötturinn undir sig stökk og greip músina. ,,Þúsund þakkír, ó köttur, “ sagði konan. ,,Jafnvel inn fyrsti vinur okkar hefði ekki leikið þetta. Þú hlýtur að vera mjög vitur. ‘' A þessari sömu stundu, ö mínir elskanlegir, brotnaöi mjólkurpotturinn við eldinn, því einnig hann minntist á samning- inn, sem konan gjörði við köttinn. Þá fór konan niður af fótstóln- um og sjá! Kötturinn var að lepja nýmjólk úr einu pottbrotinu. ,,Ó þú óvina mín, kona óvinar míns og móðir óvinarmíns, “ sagði hann. ,,Það er ég, því þú hefir hrósað mér í þriðja sinnog nú má ég lepja nýmjólkina notalegu þrisvar á dag. En samt er ég kött- urinn sem fer einförum, og allir staðir eru mér jafn kœrir. “ Þá hló konan, setti fyrir hann volga mjólk og sagði: ,,Ó köttur, þú ert eins hygginn og maðurinn, en samt skalt þú muna það, að samningurinn var hvorki gjörður við manninn eða hundinn, og ég veit ekki hversu þeim kann að líka gjörðir mínar, “ sagði konan. ,,Hvað hirði ég um þá, ef ég fœ að sitja við eldinn, og að lepja nýmjólkina notalegu þrisvar á dag. “ Þetta sama kvöld, þá er konan sagði manninum frá því er gjörst hafði, sagði hann: ,,Svo er nú það, en hann gjörði engan samn- við mig eða eftirmenn mína. ‘ ‘ Svo tók hann skó sína og stein-öxi sem gjörir þrennt, við það bætti hann spítukubb og lítilli öxi. Þetta gjörir fimm hluti alls, og bætti svo við: ,,Nú skulum við gjöra með okkur samning. Nema þú veiðir mýs æ og œfinlega þegar þú ert í hellinum, skal ég kasta þessum fimm hlutum að þér hvar sem ég sé þig, og svo skulu allir sannir menn gjöra eftir mig. “ ,,Sko, “ sagði konan. ,, Þessi köttur er hygginn, og þó er hann ekki eins hygginn og maðurinn minn. “ Kötturinn taldi hlutina ogleiztþeir ekki árennilegir og sagði því: ,,Ég skal veiða mýs þegar ég er í hellinum œ og œfinlega. En samt er ég kötturinn sem fer einförum og allir staðir eru mér jafn kærir. “ ,. Ekki þegar ég er nærri, því fyrir það sem þú sagðir þetta skal ég kasta að þér skónum mínum og þessari litlu öxi hvar sem ég mæti þér, og svo skulu allir sannir menn gjöra eftir mig. “

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.