Freyja - 01.12.1903, Qupperneq 29

Freyja - 01.12.1903, Qupperneq 29
FREYJA 11 5 II II FJOQUR STŒRSTU SKALD HEIMSINS. þessar mundir er þaö ekki lengur sveröiö, sem mestu rœöuV í heiminu. Þó þaö bæöi haii veriö notaö sem framkvæmdar- afl til flestra stórræða af stjórnanna hálfu og sé þaö aö miklu leyti enn þá, þá er þó andi ritsnillinganna að umskapa hugsunarhátt- inn heimsendanna á milli. Og þegar honum er svo breytt aö fólk- ið fer sjálft að hugsa, verður það ekki íéngur konungarnir, eða valdið, sem einsamalt rœður öllu og hugsar allt fyrir heilar þjóöir, Meö því að lesa veraldarsögurta, rekur maður sig á nöfn, sem gnæfa eins og fjöll yfir sléttlendi eða furutfé yfir kjarrvið, yfir sam- tíð sína. Viö þessa menn hafa mennirnir miðaö. Þeir hafa ver- iö vitarnir í mannlífs eyðimörkinni um ókomnar aldir. Ymist hafa þessir menn verið leiðtogar í andlegum eða veraldlegum skilningi. Síðari flokknum tilheyra konungar og valdsmenn heimsins að mestu, og hafa þeir ýmist tekið tign sína að erfðum eða með her- skildi. Fyrri hlutanum tilheyra þeir menn, sem fengist hafa við að ráða gátur mannlífsins, búa mönnunum til siðareglur og leiða þá til betra og fullkomnara lífernis. Af öllum núlifanfli mönnum sem við bókmenntir fást, erit þessir menn taldir fyrstir: Tolstoy, rússneskt skáld og rithöfundur, Ibsen, norskt leikritaskáld, Björnsson, norskt skáld og stjórnfræð- ingur og Sienkiewicz,pólskur, Póllands mesta skáld sem nú er uppi, Þessír menn eru af mörgum álitnir í þeirri röð sem þeir eru hér upp taldir, og verða þó eðlilega um þaö deildar skoðanir, en flestum ber þó saman um, að þeir séu bókmennta konungar þess- ara tíma. Ég hafði œtlað Frevju að færa lesöndum sínum æfisöguágrip þessara manna ásamt myndum af þeim, í sömu röð og þeir eru hér nefndir. En sökum rúmleysis verö ég að láta mér nægjaað minn-

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.