Freyja - 01.04.1906, Blaðsíða 17
VIII. 9. FREYJA 217
on, S. B. Anthony, M. J. Gage, Lucy N. Coleman og fylgjenda
þeirra.
ÞaS er naumast hægt aS nefna svo eina cf þessum konum aö
ma'öur nefni þær ekki allar af því að þœr voru allar uppi á sama
tíma, unnu sörnu hugsjónum, börðust fyrir sömu málefnum og
gengu að inestu sömu braut að því verki. En sérstaklega eru nöfn
þeirra S. B. Anthony og E. G. Stanton óaðskiljanleg eins og œfi-
starf þeirra. Báðar helguöu þoer mannréttindunum alla sína æfi,
og unnu saman að þeim, báðar höfðu óbilandi kjark og þrautseigju,
og eftir báðar liggur afar mikið verk. Alla œfi voru þær einlœgar
vinkonur þrátt fyrir það, að leiðir þeirra skiftust nokkuð síðustu
árin. E. C. Stanton vildi fara og fór fyrir rætur alls þess er hún
áleit að héldi og haldið hefði konunni í ánauð og þess vegnahróp-
aði hún: „Burtmeð Pétur og Pál! Burt með allt sem stendur á
vegi mannréttindanna! og þessu til áréttingar reit hún hina heims-
frægú bók sína ,,Thé Womans Bible“ [Kvenn-biblíuna] á árunum
1890-1900. Þess vegna hefir hún verið sett við hlið hins ódauð-
lega Ingersolls. Súsan B. Anthony fór öðruvísi að, hún áleit að
fyrsta atriðið vœri kjörgengi kvenna. Að því fengnu væri allt ann-
að fengið. Hún vakti fólkið og menntaði það. „Frelsið verður
hv'orki veitt né gefið, fólkið verðurað þrá það og berjast fyrir því.
Ekki er heldur hœgt að gefa því menntun eða menning, það verð-
ur að þrá hana sjálft og berjast fyrir henni, “ sagði hún.
Marilla M-Ricker segir um hana: ,,Fyrir 30 árum síðan
kom hún,samkvœmt beiðni minni til Dover, NewHampshire til að
flytja fytirlestur um kvennfrelsi. Fyrir texta hafði hún þetta:
,,Það sem konan þarfnast er brauð, ekki atkvœði. “ En hún sýnd i
svö glöggt að til þess að fá ið fyrra yrðu þoer að fá ið síðara að til-
heyrendur hennar þóttust aldrei hafa heyrt skarpari kv.frelsisrœðu,
enda tókst henni alvarlega að vekja konurnar í Dover til meðvií-
undar um' það, að þeim v'œri rangt gjört með þvíaðsynja þeim um
atkvoeðisréftinn,
,,Þegár sannleikurinn foer áheyrn, og Saga að hundrað árum
liðnum drýpur penna sínum í geisla sólarinnar mun hún rita nafn-
iö Susau Browning Anthony, meðal inna f\rstu nafna heimsins
beztuTnanna og kvenna. “